Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Ísland
2
1
Albanía
0-1 Valdet Rama '9
Birkir Bjarnason '14 1-1
Kolbeinn Sigþórsson '47 2-1
10.09.2013  -  19:00
Laugardalsvöllur
Undankeppni HM
Aðstæður: Rigning
Dómari: Andre Marriner (Eng)
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson ('92)
6. Ragnar Sigurðsson
7. Jóhann Berg Guðmundsson
8. Birkir Bjarnason
9. Kolbeinn Sigþórsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
14. Kári Árnason
17. Aron Einar Gunnarsson
22. Eiður Smári Guðjohnsen ('79)
23. Ari Freyr Skúlason

Varamenn:
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
3. Hallgrímur Jónasson ('92)
10. Arnór Smárason
11. Alfreð Finnbogason
13. Jóhann Laxdal
16. Ólafur Ingi Skúlason ('79)
21. Haukur Páll Sigurðsson
25. Helgi Valur Daníelsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Gylfi Þór Sigurðsson ('77)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Heil og sæl! Hér verður fylgst grannt með gangi mála í mikilvægasta landsleik Íslands í háa herrans tíð. HM-draumurinn lifir en sigur þarf að vinnast í kvöld. Uppselt er á leikinn og búist við flottri stemningu. Sigur í kvöld væri risaskref í átt að öðru sæti riðilsins.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dómaratríóið er enskt. Með flautuna er úrvalsdeildardómarinn Andre Marriner en hann dæmdi m.a. síðasta bikarúrslitaleik á Englandi.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Um klukkutíma fyrir leik verður byrjunarlið Íslands tilkynnt. Stærsta spurningin er hvort Eiður Smári komi inn í byrjunarliðið. Þá gæti verið að Lars skipti um hægri bakvörð.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Einn helsti leikmaður Albana er miðvörðurinn Lorik Cana. Sex leikmenn albanska landsliðsins eru á mála hjá ítölskum liðum. Albanía er í 38. sæti heimslistans og á einnig góða möguleika á öðru sætinu.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Okkar menn eru sigurstranglegri í kvöld samkvæmt stuðlum Bet365. Stuðullinn 2,30 er gefinn á Ísland, jafntefli 3,40 og útisigur 3,40.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarliðin má sjá til hliðar. Íslenska liðið er það sama og lauk leik gegn Sviss fyrir utan að Birkir Már Sævarsson heldur stöðu sinni sem hægri bakvörður. Eiður Smári Guðjohnsen kemur inn fyrir Helga Val Daníelsson. Eiður er frammi með Kolbeini og Gylfi á miðjunni.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Liðin eru byrjuð að hita upp á fullum krafti á vellinum. 35 mínútur í leik og talsvert síðan byrjað var að streyma á völlinn.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Spámaður okkar að þessu sinni er Tómas Þór Þórðarson, útvarpsmaður og blaðamaður á Morgunblaðinu. Hann spáir 4-0 sigri í kvöld! Bjartsýnn hann Tom.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
"Þorparinn" ómar í græjunum. Það er kominn einhver 50 manna hópur af albönskum stuðningsmönnum í stúkuna.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Var að heyra að 15 manna hópur hafi fengið miða hjá KSÍ sem blaðamenn en í ljós kom að þetta eru svo bara almennir stuðningsmenn. Eru hressir með blaðamannapassana sína í albönskum treyjum, búnir að hella vel í sig fyrir leikinn.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Þjóðsöngvar að baki. Þetta er að bresta á!
Elvar Geir Magnússon
Tómas Þór Þórðarson, mbl.is:
Þetta var handboltaþjóðsöngur. Allir tóku undir og þvílík stemning. GET IT ÍSLAND
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Leikurinn er hafinn
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Gestirnir byrja á hápressu. Þeir eru vanir því.
Elvar Geir Magnússon
5. mín
Hörkuskot frá Gylfa sem markvörður Albana varði með tilþrifum alveg út við stöng!
Elvar Geir Magnússon
9. mín MARK!
Valdet Rama (Albanía)
Pressa íslenska liðsins var orðin heldur þung en þá kemur þessi blauta tuska í andlitið. Skot af löngu færi sem steinlá í netinu.
Elvar Geir Magnússon
11. mín
Eiður Smári skyndilega í dauðafæri en Bersiha með heimsklassa markvörslu!
Elvar Geir Magnússon
14. mín MARK!
Birkir Bjarnason (Ísland)
Stoðsending: Birkir Már Sævarsson
ÍSLAND JAFNAR! Jói Berg með sendingu á Birki Má sem kom upp hægri vænginn og sendi fyrir. Albana mistókst að hreinsa frá og Birkir Bjarnason var við markteiginn og kom boltanum inn! Eiður sótti líka að boltanum en Birkir var frekari og skaut upp í þaknetið.
Elvar Geir Magnússon
19. mín
Íslenska liðið sækir mun meira.
Elvar Geir Magnússon
20. mín
Í upphafi textalýsingarinnar voru netvandræði í gangi hér á Laugardalsvelli. Þetta er orðið skárra núna en mætti vera mun betra. Ansi hægt netið.
Elvar Geir Magnússon
22. mín
Gestirnir með hörkuskot rétt framhjá. úff... þarna fór um mann. Hélt að þessi væri á leið inn.
Elvar Geir Magnússon
28. mín
Síðustu mínútur verið nokkuð rólegar.
Elvar Geir Magnússon
33. mín
Íslenska liðið átt nokkra hreint frábæra spilkafla. Mikið mun meira með boltann.
Elvar Geir Magnússon
34. mín
Kolbeinn með stórhættulega sendingu á Eið sem var ótrúlega nálægt því að ná til boltans! Sóknirnar farnar að þyngjast á ný.
Elvar Geir Magnússon
Ásgeir Aron Ásgeirsson:
Djöfull er gaman að sjá gylfa og eið spila saman #gæði #hættiðisamtadgefaáBM
Elvar Geir Magnússon
35. mín
Birkir Bjarnason vinnur hornspyrnu...
Elvar Geir Magnússon
36. mín
...boltinn á Ragnar Sigurðsson sem náði skoti en beint á Berisha markvörð.
Elvar Geir Magnússon
Frans Elvarsson, leikmaður Keflavíkur:
Eiður Smári og Gylfi eru að spila eins og Iniesta og Xavi hingað til
Elvar Geir Magnússon
39. mín
Salihi með stórhættulegt skot en fín viðbrögð hjá Hannesi sem var fljótur niður og varði af stuttu færi.
Elvar Geir Magnússon
44. mín Gult spjald: Ergys Kage (Albanía)
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Var þetta ekki víti?? Albani með hörmulega hreinsun sem virtist einfaldlega fara upp í hendina á honum. Ekkert dæmt.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur - Ísland mun sterkara liðið og það koma fleiri mörk í þennan leik.
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Elvar Geir Magnússon
47. mín MARK!
Kolbeinn Sigþórsson (Ísland)
Stoðsending: Birkir Már Sævarsson
JÁÁÁÁÁ!!!! Birkir Már með aðra stoðsendingu! Fór framhjá bakverði Albaníu og kom boltanum fyrir. Kolbeinn skoraði með hælnum, glæsilegt. Ég kalla þetta Berbatov-mark!
Elvar Geir Magnússon
51. mín
Kolbeinn er kominn með 11 mörk í 17 landsleikjum.
Elvar Geir Magnússon
Guðjón Guðmundsson, 365:
Birkir Már hefur svarað fyrir sig með stæl. Svona gera bara topp eintök. Vel gert. Allir í stuði í Eskihlíðinni. Elli líka.
Elvar Geir Magnússon
Hjörtur Hjartarson, fréttamaður:
Gylfi Sig outstanding í kvöld. #TheSig
Elvar Geir Magnússon
59. mín Gult spjald: Armend Dallku (Albanía)
Elvar Geir Magnússon
61. mín
Stórhættuleg sókn hjá Íslandi. Gylfi með skot og fær takkana frá varnarmanni Albaníu upp á móti sér og á ristina. Þetta leit ekki vel út. Mikið högg. Gylfi þarf aðhlynningu.
Elvar Geir Magnússon
63. mín
Leikur er hafinn á ný og Gylfi mættur út á völlinn aftur. Fær lófaklapp.
Elvar Geir Magnússon
64. mín
Inn:Armando Sadiku (Albanía) Út:Edgar Cani (Albanía)
Elvar Geir Magnússon
70. mín
Birkir Már hársbreidd frá því að leggja upp þriðja markið! Var kominn inn í teiginn og gaf fyrir en boltinn sigldi framhjá bláum treyjum.
Elvar Geir Magnússon
76. mín
Við erum farnir að gefa of mörg færi á okkur. Sóknir gestana að þyngjast og við ekki að ná að halda boltanum nægilega vel framarlega á vellinum.
Elvar Geir Magnússon
77. mín Gult spjald: Gylfi Þór Sigurðsson (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson:
Ólafur Ingi að koma inn á.
Elvar Geir Magnússon
78. mín
Jóhann Berg með hörkuskot en Berisha varði!
Elvar Geir Magnússon
79. mín
Inn:Ólafur Ingi Skúlason (Ísland) Út:Eiður Smári Guðjohnsen (Ísland)
Eiði klappað vel í lofa. Vinsæll og veit af því.
Elvar Geir Magnússon
80. mín Gult spjald: Armando Sadiku (Albanía)
Elvar Geir Magnússon
84. mín
Gylfi með flottan snúning og hættulegt skot naumlega framhjá. Gylfi hefur verið frábær í kvöld.
Elvar Geir Magnússon
86. mín
Áhorfendur: 9.768. Uppselt.
Elvar Geir Magnússon
90. mín
Lokamínúta í venjulegum leiktíma......
Elvar Geir Magnússon
91. mín
Uppbótartíminn er 3 mínútur
Elvar Geir Magnússon
92. mín
Inn:Hallgrímur Jónasson (Ísland) Út:Birkir Már Sævarsson (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
Leik lokið!
ÞVÍLÍKUR SIGUR! ÞVÍLÍK STUND! FRÁBÆRLEGA GERT! Viðtöl, umfjöllun, einkunnir og meira á leiðinni...
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Etrit Berisha (m)
2. Andi Lila
3. Admir Teli
4. Armend Dallku
5. Lorik Cana (f)
7. Ergys Kage
9. Edgar Cani ('64)
14. Migjen Basha
18. Hamdi Salihi
20. Valdet Rama
21. Odise Roshi

Varamenn:
1. Gentian Selmani (m)
6. Debatik Curri
8. Ervin Bulku
10. Jürgen Gjasula
11. Emiljano Vila
15. Renato Arapi
22. Amir Abrashi

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Armando Sadiku ('80)
Armend Dallku ('59)
Ergys Kage ('44)

Rauð spjöld: