Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
ÍA
1
3
Fylkir
0-1 Tómas Joð Þorsteinsson '7
0-2 Viðar Örn Kjartansson '31 , víti
Kristján Hauksson '48
0-3 Pablo Punyed '77
Jóhannes Karl Guðjónsson '80 1-3
28.09.2013  -  14:00
Norðurálsvöllurinn
Pepsí-deild karla
Aðstæður: Völlurinn sæmilegur og nokkuð hvasst
Dómari: Kristinn Jakobsson
Áhorfendur: 500
Maður leiksins: Viðar Örn Kjartansson
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Jóhannes Karl Guðjónsson
Ármann Smári Björnsson
2. Hákon Ingi Einarsson
10. Jón Vilhelm Ákason ('46)
19. Eggert Kári Karlsson ('78)
32. Garðar Gunnlaugsson

Varamenn:
17. Andri Adolphsson ('46)
18. Albert Hafsteinsson
20. Alexander Már Þorláksson ('78)

Liðsstjórn:
Páll Gísli Jónsson

Gul spjöld:
Jóhannes Karl Guðjónsson ('72)
Andri Adolphsson ('62)
Hákon Ingi Einarsson ('42)
Árni Snær Ólafsson ('31)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur og velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍA og Fylkis í 22. umferð Íslandsmótsins en um síðasta leik tímabilsins er að ræða.
Fyrir leik
Þessi leikur skiptir í raun litlu máli fyrir liðin. ÍA er fallið í 1.deild og Fylkir er í sjöunda sæti deildarinnar og endar á því bili í sumar.
Fyrir leik
Liðin hafa mæst í 39 skipti í opinberum leikjum á vegum KSÍ og hefur ÍA unnið 20 leiki, Fylkir 12 og 7 sinnum hefur leikur endað með jafntefli. Markatalan er einnig ÍA í hag eða 70 mörk gegn 54 mörkum Fylkis.
Fyrir leik
Dómari leiksins er Kristinn Jakobsson. Honum til aðstoðar eru Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Eftirlitsmaður KSÍ er Einar Örn Daníelsson.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús en þau má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Vallaraðstæður eru ekkert sérstakar í dag. Völlurinn er frekar illa farinn á miðjunni á báðum vallarhelmingunum. Sterkur hliðarvindur er svo þannig að það er frekar kalt fyrir þá áhorfendur sem eru mættir.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Fylkismenn byrja með boltann.
3. mín
Eftir barning í vítateig Fylkis á Jóhannes Karl Guðjónsson fast skot en boltinn fór nokkuð framhjá markinu.
7. mín MARK!
Tómas Joð Þorsteinsson (Fylkir)
Tómas J. Þorsteinsson á lúmskt skot á nærstöngina á marki ÍA og boltinn fór inn án þess að Árni Snær Ólafsson fengi rönd við reist.
11. mín
Viðar Örn Kjartansson með fast skot að marki ÍA sem Árni Snær Ólafsson ver út í teig. Þar kemur Tómas J. Þorsteinsson aðvífandi en Árni Snær bjargar meistaralega í horn með góðu úthlaupi.
15. mín
Hafþór Ægir Vilhjálmsson með góða fyrirgjöf inn í vítateig Fylkis þar sem Garðar Gunnlaugsson á skalla sem Ólafur Íshólm Ólafsson ver auðveldlega.
16. mín
Stungusending inn fyrir vörn ÍA þar sem Viðar Örn Kjartansson er einn á móti markverði en skýtur boltanum framhjá.
21. mín Gult spjald: Kristján Hauksson (Fylkir)
22. mín
Aukaspyrna sem ÍA á rétt fyrir utan vítateig Fylkis. Hafþór Ægir Vilhjálmsson tekur spyrnuna og Ólafur Íshólm Ólafsson má hafa sig allan við að verja boltann í horn.
26. mín
Pablo Punyed með hörkuskot að marki ÍA sem Árni Snær varði snilldarlega út við stöng.
31. mín Gult spjald: Árni Snær Ólafsson (ÍA)
31. mín Mark úr víti!
Viðar Örn Kjartansson (Fylkir)
Stoðsending: Emil Berger
Emil Berger á stungusendingu inn fyrir vörn ÍA. Viðar Örn Kjartansson fer einn á móti markverði ÍA sem brýtur á honum og vítaspyrna dæmd. Viðar Örn skorar svo af öryggi úr vítinu.
39. mín
Jón Vilhelm Ákason með skot yfir markið eftir hornspyrnu.
42. mín Gult spjald: Hákon Ingi Einarsson (ÍA)
45. mín
Fyrri hálfleik er lokið og Fylkismenn sanngjarnt 0-2 yfir.
46. mín
Inn:Andri Adolphsson (ÍA) Út:Jón Vilhelm Ákason (ÍA)
46. mín
Inn:Hallur Flosason (ÍA) Út:Hafþór Ægir Vilhjálmsson (ÍA)
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Skagamenn byrja með boltann.
48. mín Rautt spjald: Kristján Hauksson (Fylkir)
Kristján Hauksson fékk sitt annað gula spjald.
57. mín
Tómas J. Þorsteinsson með skot yfir mark ÍA.
62. mín Gult spjald: Andri Adolphsson (ÍA)
63. mín
Lítið að gerast í leiknum. Fylkismenn hafa þétt varnarleik sinn og beita skyndisóknum en sóknarlotur Skagamanna eru frekar bitlausar.
65. mín
Viðar Örn Kjartansson með frábæran einleik þar sem hann splundrar vörn ÍA. Hann kemst einn á móti markverði en skot hans fer rétt framhjá stönginni.
66. mín
Emil Berger með skot að marki ÍA sem fer yfir markið.
67. mín
Inn:Egill Trausti Ómarsson (Fylkir) Út:Ásgeir Örn Arnþórsson (Fylkir)
70. mín
Jóhannes Karl Guðjónsson með sendingu inn í vítateig Fylkis þar sem þrír sóknarmenn ÍA voru en enginn þeirra náði boltanum.
71. mín
Viðar Örn Kjartansson kemst enn og aftur í gott marktækifæri en skot hans fer framhjá markinu.
72. mín Gult spjald: Jóhannes Karl Guðjónsson (ÍA)
74. mín
Hallur Flosason með sendingu inn í vítateig Fylkis og Thomas Sörensen nær skalla yfir markið.
77. mín MARK!
Pablo Punyed (Fylkir)
Pablo Punyed leikur sér að varnarmönnum ÍA og skorar framhjá Árna Snæ.
78. mín
Inn:Alexander Már Þorláksson (ÍA) Út:Eggert Kári Karlsson (ÍA)
79. mín
Hector Pena Bustamante með skot að marki Fylkis en Ólafur Íshólm ver í horn.
80. mín MARK!
Jóhannes Karl Guðjónsson (ÍA)
Stoðsending: Hallur Flosason
Hallur Flosason á hornspyrnu sem Jóhannes Karl Guðjónsson skallar í nærhornið.
80. mín
Inn:Daði Ólafsson (Fylkir) Út:Pablo Punyed (Fylkir)
86. mín
Hector Pena Bustamante með góða sendingu inn í markteig Fylkis. Þar var Alexander Már Þorláksson og átti skot sem Ólafur Íshólm varði vel í markinu. Frákstinu náði Garðar Gunnlaugsson en skot hans fór yfir markið.
89. mín
Alexander Már Þorláksson með skot að marki Fylkis en boltinn fór yfir markið.
90. mín
Inn:Ásgeir Eyþórsson (Fylkir) Út:Emil Berger (Fylkir)
90. mín
Leiknum er lokið með sanngjörnum 1-3 sigri Fylkis.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
Kristján Hauksson
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
11. Kjartan Ágúst Breiðdal
16. Tómas Joð Þorsteinsson
24. Elís Rafn Björnsson
25. Agnar Bragi Magnússon
49. Ásgeir Örn Arnþórsson ('67)

Varamenn:
2. Ásgeir Eyþórsson ('90)
22. Davíð Einarsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Kristján Hauksson ('21)

Rauð spjöld:
Kristján Hauksson ('48)