Sun 29. mars 2003 Farðu varlega litli minn Eysteinn Guðmundsson var eitt sinn að dæma leik í Keflavík. Óskar Færseth, hinn lágvaxni bakvörður ÍBK, brýtur þá af sér og fær tiltal frá Eysteini sem endar með varnarorðunum: ,,Farðu svo varlega litli minn." -,,Ég er ekkert minni en þú, góði." svaraði bakvörðurinn sármóðgaður um hæl. Þá dró Eysteinn upp gula spjaldið og sýndi Óskari, fyrir slæman munnsöfnuð við dómara. ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Lau 28. mars 2003 Kunniði Búlgörsku strákar? Ragnar Margeirsson fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu sem nú er látinn var eitt sinn staddur erlendis með íslenska landsliðinu fyrir nokkrum árum. Í einni fríhöfninni sá hann hið vinsæla spurningaspil Trivial Pursuit og þar sem spilið var nánast gefins skellti Raggi sér á það. Þegar hefja átti spurningaleikinn vandaðist málið þó heldur betur. Spurningarnar voru nefnilega allar á... búlgörsku. ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Fim 27.mars 2003 Blæs ekki lífi í lík! Mikil taugabilun ríkti sumarið 1997 meðal stjórnarmanna margra íþróttafélaga og tóku þeir sem aldrei fyrr upp stjórnarhætti erlendra milljónafélaga og spörkuðu þjálfurum í gríð og erg. KR-ingar riðu á vaðið og ráku Lúkas Kostic. Stjörnumenn fylgdu í kjölfarið og létu Þórð Lárusson sigla. Orðasveimur var á kreiki um að Guðjóni Þórðarsyni hefði verið boðið að taka við af Þórði en hann neitað með þeim orðum að hann treysti sér ekki til að blása lífi í lík. Þegar víurnar voru bornar í Inga Björn Albertsson þóttust Gróurnar þess fullvissar að hann yrði ráðinn. Hvers vegna? Jú, þar myndi Stjarnan fá vanan mann, Ingi Björn hefði þegar verið rekinn úr þjálfarastarfi. ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Mið 26.mars 2003 Ég hef áhuga á þér. Það var eftir einn leik Skagamanna, sem tapaðist að ókunnugur maður vatt sér inn í búningsherbergi ÍA og sagði við Helga Daníelsson markvörð: ,,Ég hef áhuga á þér." Helgi spyr að bragði: ,,Frá hvaða félagi ert þú?" -,,Ég" stundi maðurinn. ,,Nei, þú misskilur þetta. Ég er augnlæknir." ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Þri 25.mars 2003 Sunny day. Tungumálakunnátta knattspyrnumanna í ÍA hefur ávallt verið misjöfn og var svo einnig árið 1986 þegar enskur þjálfari, Jim Barron að nafni hélt þar við stjórnvölinn. Dag einn, skömmu fyrir æfingu á sólríkum sumardegi, kom þjálfarinn inn í búningsklefann og sagði: ,,Well it´s a sunny day." Varla hafði þjálfarinn mælt þessi orð þegar heyrðist frá einum leikmanninum: ,,Djöfull er karlinn vitlaus. Það er sko ekki sunnudagur í dag, það er laugardagur." ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Mán 24.mars 2003 Reykti 3 pakka af Camel á dag... Að þessu sinni tókum við saman nokkrar gamansögur af danska landsliðinu sem sló óvænt í gegn á HM í Mexíkó 1986.
Bjórdrykkja leikmanna danka landsliðsins vakti strax mikla athygli. ,,Við komum hingað til að skemmta áhorfendum. Strákarnir hafa gaman af því að leika knattspyrnu. Eftir leiki setjumst við niður og drekkum nokkra bjóra saman." sagði Sepp Piontek, þjálfari Dana, en þeir fengu að drekka þrjá bjóra eftir leik.
Sepp Piontek, þjálfari Dana stjórnaði Haiti í HM 1974 í V-Þýskalandi. Hann varð þá að selja banana á milli þess sem hann þjálfaði á Haiti. Það gerði hann til að tryggja sér viðunandi laun.
Þremur dögum fyrir leik Dana og Skota gekk Morten Olsen, fyrirliði Dana, á fund Sepp Piontek þjálfara, og bað um að slakað yrði á æfingunum, sem væru þreytandi. ,,Við erum ekki vélmenni, heldur menn." sagði Olsen. Piontek tók ósk leikmanna vel og slakaði á æfingunum og sagði að leikmenn sínir mættu sofa lengur á morgnana.
Sepp Piontek gaf grænt ljós á að eiginkonur leikmanna sinna mættu koma til Mexíkó. Piontek sagði að konurnar yrðu að vera á öðru hóteli, en þær mættu koma í heimsókn þegar vel stæði á hjá leikmönnum.
Það vakti mikla athygli að dönsku leikmennirnir drukku bjór inni í rútubifreið þegar þeir voru að koma af fyrstu æfingunni eftir leikinn gegn Úrúgvæ sem Danir unnu 6-1. Eftir leikinn hafði Piontek sagt: ,,Það verður veisla hjá okkur í kvöld."
Preben Elkjær Larssen reykti þrjá pakka af Camel sígarettum á dag á meðan HM stóð yfir.
Preben Elkjær Larssen var eitt sinn hjá Köln, en þaðan var hann látinn fara til Lokeren. Hann var eitt sinn kallaður fyrir þjálfara Köln, sem sagði við Preben: ,,Ég var að frétta að þú hafir verið á næturklúbbi í nótt og drukkið mörg glös af viskí." Preben svaraði: ,,Það er ekki rétt. Ég drakk vodka." Hann var í kjölfarið látinn fara frá Köln.
Sun 23. mars 2003 Jarðarför á Laugardalsvelli...
ÍBV og ÍA áttust við í bikarúrslitaleiknum árið 1983. Á þessum árum var mikið meiri hiti á milli stuðningsmanna liðanna en er í dag og til marks um það getið þið lesið fréttina hér að neðan sem við rákumst á nú nýlega og er frá þessum tíma.
,,Þeir skulu verða vitni að sinni eigin jarðarför. Því skal ég lofa þeim," sagði einn fokillur leikmaður Akranesliðsins á laugardag þegar honum var sýnd auglýsing sem áhangendur Vestmanneyinga höfðu látið dreifa í hús á Reykjavíkursvæðinu. Var auglýsingin svohljóðandi:
,,Sunnudaginn 28.ágúst kl. 14 verður Íþróttabandalag Akranes jarðað á Laugardalsvellinum af Íþróttabandalagi Vestmanneyja. Nærveru þinnar er óskað meðan útförin fer fram. Aðstandendur."
Forráðamenn Vestmannaeyjaliðssins létu lesa yfirlýsingu í hátalarakerfi vallarins þar sem þeir sóru af sér auglýsingu þessa og var sagt að þeim hefði naumlega tekist að stöðva ,,aðstandendur" þar sem þeir hugðust koma gangandi með líkkistu skreytta fána Akranesliðssins inn á völlinn. Kistan sást ekki, en fáni Akurnesinga var brenndur á áhorfendapöllum og svöruðu Skagamenn með því að brenna fána Vestmanneyjinga. Ekki kom þó til átaka á pöllunum.
Það voru þó ekki Akurnesingar sem voru ,,jarðaðir" í þessum leik því að þeir unnu leikinn 2-1 eftir framlengingu og eru því bikarmeistarar Íslands annað árið í röð.
Lau 22.mars 2003 Ég get ekki verið tvö! Gull- og silfurmótið í Kópavogi er fjölmennasta knattspyrnumót stúlkna hér á landi. Þar er leikið í öllum flokkum, nema meistaraflokki, og koma margir keppendur langt að. Það var einmitt á Gull- og silfurmótinu nú í sumar að þjálfari nokkur kom að máli við eina stúlkuna í 6. flokki og sagði: ,,Nú átt þú að vera tengiliður og jafnframt fyrirliði." Sú stutta leit á þjálfara sinn og sagði hissa: ,,Ég get ekki verið tvö." ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Fös 21.mars 2003 Ha bara 5000 ? Árið 1975 lék ÍA við Dynamo Kiev í annari umferð Evópukeppni meistaraliða. Þegar að Dynamo kom hingað til lands var einum forráðamanni sagt, að á Akranesi byggju aðeins um 5000 íbúar. Átti hann fremur erfitt með því að trúa því en stundi þó upp ,, Ha aðeins fimm þúsund ! Það eru svona álíka margir og búa í blokkinni hjá mér." ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Fim 20.mars 2003 Hittu boltann. Einhverju sinni hafði leikmaður gerst grófur í tali við Gylfa Þór Orrason dómara, sem aldrei þessu vant svaraði fyrir sig og sagði ,,Reyndu bara að hitta boltann svona til tilbreytingar” ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Mið 19.mars 2003 Nakinn hjá nuddkonunni. Leikmenn ÍA dvöldu eitt sinn á Hótel Örk á Evrópuleik. Þar nutu Skagamenn hinna mestu þæginda og komust meðal annars í greipar nuddkonu sem sá um að mýkja vöðva þeirra fyrir komandi átök. Þegar Ólafur Þórðarson mætti í nuddið var hann á stuttbuxum einum fata. Nuddkonan biður hann að fara úr þeim og leggjast svo á bekkinn. Óli verður klumsa og segir svo:
,,Ég er ekki í neinu innanundir, ekki einu sinni sundskýlu.” ,,Það er allt í lagi,” svaraði konan, ,,við nuddum bara hér.” ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Þri 18.mars 2003 Hljóp jafnfætis Guðmundur Hilmarsson FH ingur sem nú er íþróttafréttamaður á Morgunblaðiðnu lýsti broti hjá Skagamanninum Alexandri Högnasyni þannig. Svo kom Alexander hlaupandi jafnfætis og tæklaði hann alveg hrikalega,, Í annað sinn sagði svo Guðmundur "Ég stöðvaði sókn Fylkis í kæfingu,, ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Mán 17.mars 2003 Eyjamenn á kvennafari. Vorið 1987 fóru leikmenn ÍBV í æfingaferð til Akureyrar. Dvalið var á gistiheimili og nutu tveir af lykilmönnnum liðsins, sem þá voru lausir og liðugir, þeirra forréttinda að vera í sér herbergi á meðan hinir úr liðinu þurftu að hafast við í stórum svefnsal. Síðasta kvöld hópsins á Akureyri var ferðinni heitið á Sjallann. Áður en þangað var haldið höfðu hinir lausu og liðugu gert með sér samkomulag og var það svo, að næði annar hvor þeirra í kvenmann og kæmi ekki heim á gistiheimilið um nóttina, ætti hinn að sjá um að koma farangri þeirra beggja út á flugvöll um morguninn.
Í rauðabítið hittust svo félagarnir á flugvellinum og segir þá annar þeirra: ,,Tókstu draslið mitt með þér eins og um var rætt?” ,,Nei,” segir hinn, ,,komst þú ekki með farangurinn okkar?” Kom þá upp úr kafinu að báðir höfðu þeir lent á kvennafari um kvöldið og dagað uppi víðsfjarri gistiheimilinu. Þeim möguleika höfðu þeir þó gleymt að gera ráð fyrir í skipulaginu. ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Sun 16.mars 2003 Besta sjálfsmark allra tíma. Í lok apríl árið 1984 léku Fylkismenn við Ármann í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu. Leikurinn fór 3-2 fyrir Fylkismenn, sigurmarkið var nokkuð skrautlegt:
Markvörður Ármanns hafði náð boltanum af sóknarmanni Fylkis er sóknarmaðurinn hljóp inn í mark Ármenninga til að fá sér sopa af vatnsbrúsa sem þar var. Markvörðurinn rauk á eftir honum með boltann í fanginu og reif af honum brúsann, en fór yfir marklínuna með boltann í leiðinni. Dómarinn dæmdi umsvifalaust mark. Markvörðurinn mótmælti svo harkalega að honum var að lokum vikið af leikvelli.
Lau 15.mars 2003 Er fyrri leikurinn ekki alltaf á undan ? Björn Jónsson sem lengi lék með FH og var fyrirliði þess um tíma, var eitt sinn að spjalla við þáverandi samerja sinn, Birgi Skúlason. Þetta var skömmu fyrir Evrópuleik FH við skoska félagið Dundee. Er þeir höfðu skeggrætt um væntanlegan leik segir Björn allt í einu: ,,Hvernig er það, er ekki fyrri leikurinn alltaf á undan?" ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?"
Fös 14.mars 2003 Kunnur knattspyrnudómari sem nú er hættur störfum, reyndi eitt sinn fyrir sér sem handknattleiksdómari. Ferill hans í handboltanum varð þó stuttur því í sínum fyrsta leik stöðvaði hann nefnilega hraðaupphlaup og dæmdi rangstöðu.
Joe Hooley þjálfaði Keflavík fyrir margt löngu. Hann krafðist stundvísi af leikmönnum sínum og beitti þá miskunarlaust refsingum ef að þeir komu of seint á æfingar. Einhverju sinni var leikmaður seinn fyrir og Hooley spyr um ástæðuna. ,,Það var verið að skíra son minn" segir leikmaðurinn. ,,Og var ekki hægt að ljúka því í tíma ?" Spyr Hooley undrandi. ,,Nei sjáðu til, nafnið á drengnum er svo langt" Sagði leikmaðurinn og slapp því við refsingu. ©Birt með góðfúslegu leyfi bókaútgáfunnar Hóla | Tekið úr bókinni ,,Hverjir eru bestir?" |