Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
KFA
0
1
KFG
0-1 Jón Arnar Barðdal '3
23.09.2023  -  14:00
Fjarðabyggðarhöllin
Fótbolti.net bikarinn
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Byrjunarlið:
1. Danny El-Hage (m)
3. Geir Sigurbjörn Ómarsson
5. Inigo Albizuri Arruti ('78)
6. Dagur Þór Hjartarson ('46)
7. Arkadiusz Jan Grzelak (f)
8. Imanol Vergara Gonzalez ('62)
10. Marteinn Már Sverrisson
14. William Suárez Marques
16. Unnar Ari Hansson (f)
21. Heiðar Snær Ragnarsson
22. Patrekur Aron Grétarsson

Varamenn:
12. Einar Andri Bergmannsson (m)
36. Daníel Þór Cekic (m)
11. Ólafur Bernharð Hallgrímsson ('46)
15. Jón Breki Guðmundsson ('78)
18. Arnór Berg Grétarsson
19. Ivan Rodrigo Moran Blanco ('62)
27. Halldór B Bjarneyjarson
29. Viktor Ívan Vilbergsson

Liðsstjórn:
Mikael Nikulásson (Þ)
Esteban Selpa
Jóhann Ragnar Benediktsson

Gul spjöld:
Ólafur Bernharð Hallgrímsson ('72)
Unnar Ari Hansson ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KFG fer í úrslit.
92. mín
KFG fær hornspyrnu eftir skot sem Danny ver, endar í markspyrnu.
90. mín Gult spjald: Unnar Ari Hansson (KFA)
84. mín
Aftur vilja KFA fá víti, mikið klafs í teignum, ómögulegt að sjá eitthvað.
82. mín
KFA kallar eftir víti, Marteinn dettur í teignum, fá hornspyrnu í staðinn sem endar í markspyrnu.
79. mín
KFA fær hornspyrnu, boltinn berst til Ivan sem skýtur yfir.
78. mín
Inn:Jón Breki Guðmundsson (KFA) Út:Inigo Albizuri Arruti (KFA)
75. mín
Inn:Daníel Andri Baldursson (KFG) Út:Tómas Orri Almarsson (KFG)
72. mín Gult spjald: Ólafur Bernharð Hallgrímsson (KFA)
70. mín
KFG fær hornspyrnu sem er hreinsuð, KFA fara í skyndiskókn sem endar í hornspyrnu hinumegin, verður ekkert úr henni heldur.
64. mín
KFG fær aukaspyrnu, góð sending inn fyrir en Danny grípur boltann.
62. mín
Inn:Ivan Rodrigo Moran Blanco (KFA) Út:Imanol Vergara Gonzalez (KFA)
60. mín
Inn:Jóhann Ólafur Jóhannsson (KFG) Út:Kári Pétursson (KFG)
60. mín
Hornspyrna KFA fær hornspyrnu sem er skölluð í burtu, fá annað tækifæri en sendingin fer aftur fyrir.
58. mín
Nokkuð jafn leikur síðustu mínútur, Heiðar með sendingu á Martein sem skýtur framhjá.
52. mín
Heiðar sloppinn í gegn en Kristófer ver frá honum.
49. mín
KFA byrjar seinni hálfleikinn af krafti, mikið klafs inn í teig KFG sem endar með skoti framhjá.
46. mín
Inn:Ólafur Bernharð Hallgrímsson (KFA) Út:Dagur Þór Hjartarson (KFA)
Arek fer í miðvörðinn.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað. Gestirnir byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða í hálfleik.
45. mín
Önnur hornspyrna KFG tekur horn hinumegin, skora næstum því úr henni.
44. mín
Hornspyrna KFG fá hornspyrnu sem er hreinsuð í burtu.
41. mín
Gott spil hjá KFA sem endar með fyrirgjöf frá Arek sem Unnar skallar yfir.
37. mín
Góð skyndisókn hjá KFG sem endar með skoti frá Jóni Arnari, Dagur hendir sér fyrir skotið og KFG fá horn.
36. mín
Slök spyrna sem er hreinsuð í burtu.
35. mín
Góð aukapsyrna sem Kristófer slær í hornspyrnu.
34. mín
KFA átti að fá víti þarna, Marteinn tekinn niður á vítateigslínunni, dómarinn dæmir aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.
33. mín
Dauðafæri Marteinn með skot af stuttu færi sem Kristófer slær í burtu.
28. mín
KFA halda áfram að ráðast að marki KFG, William með skalla sem Kristófer grípur.
27. mín
Hornspyrna KFA fær hornspyrnu, Unnar skallar boltann rétt framhjá.
25. mín
Marteinn með þrumuskot fyrir utan teig Kristófer missir næstum því í gegnum klofið á sér, bjargar þessu á endanum.
21. mín
KFG vilja víti, dómarinn hristir hausinn.
18. mín
KFG að sækja í sig veðrið, Jón Arnar sloppinn í gegn enn Danny hirðir af honum boltann.
15. mín
Hornspyrna KFG taka hornspyrnuna stutt en hún fer út um gluggan.
12. mín
Aukaspyrna Negla í samskeytin frá Geir.
10. mín
Hornspyrna Geir með flottan bolta inn á teig sem Unnar skallar í stöngina.
3. mín MARK!
Jón Arnar Barðdal (KFG)
0-1 Jón Arnar skorar eftir skógarferð hjá Danny sem tekur Dag Þór niður fyrir utan teig, klárar í autt markið.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Baldvin Borgars spáir í leikinn KFA 2 - 2 KFG (KFA áfram í vító)
Hér fáum við sterkan 2. deildar slag þar sem bæði lið upplifðu vonbrigði eftir toppbaráttu megnið af sumrinu, KFG gaf svosem mun fyrr eftir og það vissu allir að það myndi gerast, en KFA tapar sinni frábæru stöðu algjörlega niður í lok móts og vonbrigðin endanlega kláruð í lokaumferðinni fyrir viku.

KFG menn byrja leikinn betur enda erfitt fyrir Austfirðinga að rífa sig upp úr þeim andlega dal sem þeir eru í eftir síðustu helgi, Kári Péturs fær boltann og leikur sér að 2-3 KFA mönnum áður en hann leggur boltann á Jolla sem skorar af miklu öryggi mjög snemma í leiknum og KFA menn slegnir. Um miðjan fyrri hálfleik leika Garðbæingar listir sínar aftur með frábærum spilkafla að hætti Bjössa og Kristjáns Guardiola, liðið tekur einhverjar 45 sendingar sín á milli þar sem allir leikmenn KFG snerta boltann nema Tómas Orri, enda hans hlutverk bara að djöflast, berjast og garga inná vellinum auk þess að vera með stæla og leiðindi, illa góður í því. Þetta glæsilega mark endar með stungusendingu frá Kára Péturs á Dag Gadda Jóson sem klárar feykivel og Garðbæingar fara með 2-0 forystu inn í hálfleikinn.

Titlaóði Grikkinn, Mike tekur algjöran trylling á sína menn í hálfleik, gerir fimmfalda skiptingu og segir að hann hefði gert 11 breytingar ef hann gæti það, en bað þessa 6 sem áfram fá að spila leikinn til þess að drulla sér í gang annars taki hann menn útaf og setji enga inná í staðinn. Unnar Ari tekur undir orð þjálfarans og kveikir aðeins í mönnum.

The comeback is on - Unnar Ari stangar boltann inn snemma í seinni eftir hornspyrnu og KFA menn með öll völd á vellinum, þrumuræða Mike að skila sér. Áfram halda heimamenn að þjarma að gestunum sem eru öflugir í að verjast með Tómas Orra fremstan í flokki.

Marteinn Már fer mjög illa með Tómas á ca 75 mínútu, klobbar hann tvisvar og Tómas sparkar Martein niður, gult spjald og aukapyrna á hættulegum stað, Marteinn gerir smá grín í Tómasi fyrir að hafa pakkað honum saman og Tómas missir hausinn, hrindir Marteini og segir nokkur vel valin orð, seinna gula og Tómas sendur í sturtu, KFG manni færri síðasta korterið og marki yfir.

Ekkert verður úr aukaspyrnunni en KFA menn herða tökin enn frekar enda manni fleiri, það er svo á 85 mín sem að Danilo Milenkovic mætir á fjær eftir góðan sprett frá Marteini úti vinstra megin, Marteinn leggur hann í utanáhlaupið frá Geir sem neglir boltanum þvert fyrir markið beint á Danilo sem jafnar leikinn.

Síðustu mínútur venjulegs leiktíma liggja heimamenn á gestunum sem verjast vel og ná ekki að koma inn sigurmarki svo það þarf að framlengja. Í framlengingu er sagan sú sama, gestirnir liggja djúpt og verjast vel í þessum þýska heraga sem Lalli Gumm hefur komið með inn í klúbbinn, KFA menn reyna allt sem þeir geta til að brjóta varnarmúrinn á bak aftur en gengur erfiðlega, eina sem Mike var ánægður með við framlenginguna var að fá inn auka skiptingu svo hann gat gert sjöttu breytinguna sína.

Leikurinn fer alla leið í vító þar sem KFA klárar þetta örugglega enda alvöru Balkanskagataugar í liðinu þar sem vita ekki hvað pressa er, þeir vinna vítóið af miklu öryggi, 4-1 þar sem Nikola ver þrjár spyrnur gestanna og Vice, Danilo, Zvonomir og Geir skora af miklu öryggi úr sínum spyrnum, Geir sýnir Mike að guttinn sé með betri vinstri fót en þjálfarinn og þrumar boltanum upp í samskeytinn og tryggir þar með KFA á Laugardalsvöll og titlavon Mike lifir!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Geir Magnússon
Hlustaðu á hlaðvarpsþátt þar sem hitað er upp
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dómarateymið Gunnar Freyr Róbertsson dæmir leikinn í dag og er með þá Ragnar Arelíus Sveinsson og Antoníus Bjarka Halldórsson sér til aðstoðar á línunum.
Gunnar Freyr Róbertsson dæmir í dag.| Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Stefnt var að því að spila leik KFA og KFG á Eskivelli en hann hefur nú verið færður inn í Fjarðabyggðarhöllina vegna veðurs.

Úrslitaleikurinn verður svo föstudagskvöldið 29. september á Laugardalsvelli. Hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Spennandi verður að sjá hvaða lið verður fyrsti sigurvegarinn í þessari nýju keppni sem er bikarkeppni neðri deilda.

Fótbolti.net bikarinn
14:00 Víðir-KFK (Nesfisk-völlurinn)
14:00 KFA-KFG (Fjarðabyggðarhöllin)
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Undanúrslit í Fjarðabyggð Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Fjarðabyggð.

Hér mætast KFA og KFG í undanúrslitum Fótbolti.net bikarsins. Liðið sem vinnur í dag fer í úrslitaleik á Laugardalsvelli og mætir þar sigurvegara úr viðureign Víðis og KFK sem fer fram á sama tíma.
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
3. Sigurður Gunnar Jónsson
6. Tómas Orri Almarsson ('75)
7. Jón Arnar Barðdal
13. Adrían Baarregaard Valencia
15. Arnar Ingi Valgeirsson
16. Brynjar Már Björnsson
24. Ólafur Bjarni Hákonarson
25. Guðmundur Thor Ingason
80. Hinrik Þráinn Örnólfsson
96. Kári Pétursson ('60)

Varamenn:
1. Eiður Orri Kristjánsson (m)
5. Gunnar Orri Aðalsteinsson
9. Jóhann Ólafur Jóhannsson ('60)
17. Eyjólfur Andri Arason
33. Daníel Andri Baldursson ('75)
60. Pétur Máni Þorkelsson

Liðsstjórn:
Andri Sigurjónsson
Lárus Þór Guðmundsson
Jón Benjamín Sverrisson
Árni Eyþór Hreiðarsson
Sindri Rósenkranz Sævarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: