Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Árbær
0
3
Fram
0-1 Aron Snær Ingason '13
Ástþór Ingi Runólfsson '61
0-1 Aron Snær Ingason '77 , misnotað víti
0-2 Magnús Þórðarson '86
0-3 Egill Otti Vilhjálmsson '90 , víti
25.04.2024  -  14:00
AVIS völlurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Freyr Sigurðsson, Fram
Byrjunarlið:
1. Bartosz Matoga (m)
4. Freyþór Hrafn Harðarson
5. Sigurður Karl Gunnarsson (f) ('87)
7. Eyþór Ólafsson ('49)
8. Gunnþór Leó Gíslason ('49)
16. Jonatan Aaron Belányi
18. Nemanja Lekanic
24. Bjarki Sigfússon ('65)
27. Jordan Chase Tyler
28. Ragnar Páll Sigurðsson ('87)
30. Ástþór Ingi Runólfsson

Varamenn:
12. Baldur Olsen (m)
3. Aron Ingi Kristinsson
9. Hörður Kárason ('87)
11. Andi Andri Morina ('49)
14. Richard Már Guðbrandsson ('49)
21. Andrija Aron Stojadinovic ('87)
25. Róbert Daði Sigurþórsson ('65)

Liðsstjórn:
Baldvin Már Borgarsson (Þ)
Snorri Már Skúlason
Tindur Örvar Örvarsson
Marko Jeremic
Elmar Logi Þrándarson
Anton Freyr Jónsson
Stefán Bjarki Sturluson

Gul spjöld:
Ástþór Ingi Runólfsson ('27)
Eyþór Ólafsson ('45)
Ragnar Páll Sigurðsson ('51)
Richard Már Guðbrandsson ('77)
Nemanja Lekanic ('80)
Freyþór Hrafn Harðarson ('91)

Rauð spjöld:
Ástþór Ingi Runólfsson ('61)
Leik lokið!
3-0 sigur Fram á Þróttaravellinum í dag. lítið að gerast en um leið og rauða spjaldið kom fór einhvern veginn allt í gang.

91. mín Gult spjald: Freyþór Hrafn Harðarson (Árbær)
90. mín Mark úr víti!
Egill Otti Vilhjálmsson (Fram)
Smá heppni Hann þrumar honum í slánna og niður í bakið á Bartosz og inn, gæti verið skráð sem sjálfsmark á Bartosz.
90. mín
Annað Víti! Fred er bara klipptur inn í teig og verðskuldað annað víti!
87. mín
Inn:Hörður Kárason (Árbær) Út:Ragnar Páll Sigurðsson (Árbær)
87. mín
Inn:Andrija Aron Stojadinovic (Árbær) Út:Sigurður Karl Gunnarsson (Árbær)
86. mín MARK!
Magnús Þórðarson (Fram)
Hér klárar Fram leikinn! Sóknarleikur Fram í seinni hefur alls ekki verið góður og má segja þetta mark hafi komið úr engu. Frammarar búnir að hanga á boltanum í smá tíma og hann endar hjá Magnúsi sem neglir honum inn fyrir utan teig.
81. mín
Hvað er í gangi!!! Magnús Ingi réttstæður og hefur Aron Snæ hliðin á sér aleinir í öllum alheiminum og ætlar síðan að renna honum á Aron en Bartosz lesur þetta eins og í bók, hvað er í gangi!
80. mín Gult spjald: Nemanja Lekanic (Árbær)
77. mín Gult spjald: Richard Már Guðbrandsson (Árbær)
77. mín Misnotað víti!
Aron Snær Ingason (Fram)
Vááááá Bartosz étur Aron Snæ og boltinn dettur út í teiginn á Magnús Inga sem Bartosz étur bara líka! 2 sturlaðar vörslur takk fyrir takk!!
76. mín
Víti fyrir Fram! Veit ekki alveg hvað Richard Már var að gera hann hoppar bara á Anton inn í teig og réttlega dæmt víti!
74. mín
Magnús Ingi kemur með boltann fyrir í varnarmann FC Árbæ og til Egils Otta sem situr hann rétt yfir skeitina!
70. mín
Frammarar eru einum fleiri en eru ekkert að liggja í færunum þessa stundina.
65. mín
Inn:Róbert Daði Sigurþórsson (Árbær) Út:Bjarki Sigfússon (Árbær)
63. mín
Inn:Anton Ari Bjarkason (Fram) Út:Tryggvi Snær Geirsson (Fram)
fimmta og seinasta skipting Frammara
61. mín Rautt spjald: Ástþór Ingi Runólfsson (Árbær)
Tilgangslaust braut og uppskerir seinna gula á vallarhelming Frammara og er sendur í sturtu.
59. mín
Inn:Tiago Fernandes (Fram) Út:Freyr Sigurðsson (Fram)
59. mín
Inn:Fred Saraiva (Fram) Út:Breki Baldursson (Fram)
57. mín
Frammrar eru að undirbúa aðra tvöfalda skiptingu, Tiago og Fred eru að koma inná ekki leiðinlegt að hafa þessa á bekknum.
56. mín
Adam heldur áfram með þessar fyrirgjafir og enda þær alltaf allar á kollinum á Aroni sem situr hann reyndar núna á markið en frábærlega vel varið hjá Bartosz.
52. mín
Frammrar eiga aukspyrnu á hægra horninu á teignum sem Adam tekur beint á kollinn á Aroni sem skallar hann útaf.
51. mín Gult spjald: Ragnar Páll Sigurðsson (Árbær)
49. mín
Inn:Richard Már Guðbrandsson (Árbær) Út:Eyþór Ólafsson (Árbær)
49. mín
Inn:Andi Andri Morina (Árbær) Út:Gunnþór Leó Gíslason (Árbær)
48. mín
Váááá Kennie á skot frá miðju í slánna og yfir, hefði orðið svakalegt!
47. mín
Inn:Magnús Þórðarson (Fram) Út:Viktor Bjarki Daðason (Fram)
47. mín
Inn:Egill Otti Vilhjálmsson (Fram) Út:Orri Sigurjónsson (Fram)
Óskum Orra góðs bata, vonandi var þetta ekki alvarlegt.
46. mín
Leikurinn er hafinn Frammarar undirbúa tvöfalda breytingu.
45. mín
Hálfleikur
Svakalegt atvik sem gerist hér í lok fyrri hálfleiks en annars nokkuð rólegur leikur, Frammarar ættu kannski að hafa verið búnir að skora fleiri en 1 en vonandi fáum við fleiri í seinni!

Var að frétta að Orri Sigurjónsson rotaðist og mun líklegast ekki halda leik áfram.
45. mín
Hálfleikur
Frammarar leiða Svakalegt atvik sem gerist hér í lok fyrri hálfleiks en annars nokkuð rólegur leikur, Frammarar ættu kannski að hafa verið búnir að skora fleiri en 1 en vonandi fáum við fleiri í seinni!
45. mín
Vá Orri og Kennie lenda í svakalegum árekstri og Gunnar flautar hálfleikinn af, þeir steinliggja báðir eftir sár þjáðir. Kennie er staðinn upp en Orri liggur en vonandi var þetta ekki alvarlegt.
45. mín Gult spjald: Eyþór Ólafsson (Árbær)
45. mín
Belanyi neglir í vegginn.
44. mín Gult spjald: Orri Sigurjónsson (Fram)
Rétt fyrir utan teig, Stórhættulegt tækifæri fyrir FC Árbæ!
40. mín
Lekanic á geðveika fyrirgjöf á hausinn á Bjarka sem situr hann einhvern veginn framhjá Stefán í markinu las þetta hræðilega og var stál heppinn að Árbær jafnaði bara ekki þarna.
37. mín
Aron Snær með fyrirgjöf ætluð Viktori sem nær ekki til boltans og árbær hreinsa til Tryggva sem neglir honum yfir.
34. mín
Ástþór liggur eftir samstuð við Adam Örn, sýnist allt í lagi með hann.
30. mín
Freyr og Adam eru að tengja svakalega vel hérna í fyrri hálfleik, sama uppskrift og áðan beint inn fyrir á Adam sem núna hamrar honum í varnarmann og vinnur horn.

FC Árbær ná að hreinsa.
29. mín
Fyrsta færi FC Árbæinga í leiknum það átti hann Eyþór en beint á Stefán í marki Frammara.
27. mín Gult spjald: Ástþór Ingi Runólfsson (Árbær)
25. mín
Hvernig var þetta ekki mark?! Langur bolti inn fyrir á Aron Snæ sem er aleinn í heiminum en Bartosz étur hann!
22. mín
Freyr með geðveika sendingu inn fyrir vörn FC Árbæjar sem endar hjá Adami sem hamrar honum yfir.
19. mín
Adam tekur hana sjálfur, frábær bolti og það er bara hreint ótrúlegt að enginn hafi náð til hans.
18. mín
Frammarar eru mikið að vinna upp hægri kantinn, Adam Örn á fyrirgjöf í varnarmann og vinnur aðra hornspyrnu.
15. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins eiga Frammarar.

Fc Árbær ná að hreinsa.
13. mín MARK!
Aron Snær Ingason (Fram)
Stoðsending: Freyr Sigurðsson
Fyrsta mark leiksins komið í hús! Frammarar hafa verið í smá brasi með að brjóta upp Árbæingana en þetta var frábærlega vel gert, Endar hjá Freysa sem á geðveika sendingu beint á kollinn á Aroni búmm! 1-0
10. mín
Fyrsta skot leiksins komið og það átti hann Breki Baldurs eftir frábært spil sem endar hjá Frey sem setti hann út á Breka sem neglir í varnarmann FC Árbæ.
8. mín
Fyrsta almennilega spil Frammara að koma á 8.mín sem endar með fyrirgjöf sem fer aftur fyrir.
5. mín
Hefur svakalega lítið gerst hérna fyrstu 5 mín.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er hafið! Gunnar Oddur flautar þessu veislu af stað! FC Árbær byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inná völlinn, vonandi fáum við markaveislu hér á Avis-vellinum!
Fyrir leik
2008 módel að byrja hjá Fram Viktor Bjarki Daðason er að byrja hjá frömmurum hann er fæddur 2008, sóknarmaður sem fer til FCK 1.júlí, fékk mín hér og þar í lok tímabils í bestu í fyrra og fékk nokkra leiki á undirbúnings verður svakalega gaman að fylgjast með honum á næstunni!

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt! FC Árbær gerir 3 breytingar frá 2-1 sigrinum á Árborg í síðustu umferð í bikarnum þar sem Sigurður Karl, Gunnþór Leó og Bjarki koma inn í liðið.

Fram gerir 9 breytingar á liði sínu eftir sigurinn gegn KR í deild þeirra bestu, Haraldur Einar sem var keyptur í gær fer beint í liðið. Fram stillir líklega svona upp:
Stefán Þór
Adam Örn - Kennie - Orri - Þengill - Haraldur
Breki - Freyr - Tryggvi Snær
Viktor Bjarki - Aron Snær
Fyrir leik
!!!
Fyrir leik
Fram voru ekkert að spara á gluggadeginum í gær! Frammarar sóttu vinstri bakvörðinn Harald Einar frá FH sem er gamall Frammari þar sem hann var í þessu ,,invincible" Fram liði í Lengjudeildinni 2021 þar sem hann átti frábært tímabil og fór til FH með smá umdeildum hætti en er mættur aftur!

Komnir:
Alex Freyr Elísson frá Breiðabliki (var á láni hjá KA)
Kyle McLagan frá Víkingir R.
Kennie Chopart frá KR
Þorri Stefán Þorbjörnsson á láni frá Lyngby
Freyr Sigurðsson frá Sindra
Stefán Þór Hannesson frá Ægi (var á láni)

Farnir:
Aron Jóhannsson í Aftureldingu
Delphin Tshiembe til Danmerkur
Ion Perello til Grindavíkur
Þórir Guðjónsson til Þróttar R.
Viktor Bjarki Daðason til FCK (1. júlí)


Fyrir leik
Rúnar Kristins og stúkan hristist Veit ekki hversu oft maður er búinn að heyra þetta síðustu daga og það hefur fullan rétt þar sem Frammarar hafa farið frábærlega vel af stað í deild þeirra bestu með risastórum sigri gegn KR í síðustu umferð 1-0 á Þróttaravellinum þar sem verður leikið í dag.

Varnarleikur Frammara var stórt spurningarmerki á síðustu leiktíð en hafa byrjað þetta tímabil svakalega vel, þetta 5-3-2 kerfi hefur virkað eins og í sögu og hefur jafnvel vekið smá athygli erlendis.

Fyrir leik
FC Árbær Framarar eru Bestu Deildar félag þannig þetta er þeirra fyrsta umferð í bikarnum en FC Árbær hafa spilað 2 leiki þar sem þeir eru í þriðju deild.

Leið FC Árbæjar í 32- liða úrslit hefur verið skrautleg þar sem þeir byrja með að vinna Smára í vító eftir að leikurinn hafi endað 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Drógust síðan gegn Árborg í næsta leik þar sem þeir unnu 2-1 og það leiddi þá að þessum leik!

Mynd: Árbær

Fyrir leik
Góðan daginn Verið hjartanlega velkominn á þessa þráðbeinu textalýsingu frá Avis vellinum (völlur Þróttur Reykjavíkur), þar sem FC Árbær og Fram Reykjavík takast á í 32- liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Stefán Þór Hannesson (m)
4. Orri Sigurjónsson ('47)
6. Tryggvi Snær Geirsson ('63)
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Kennie Chopart
15. Breki Baldursson ('59)
16. Viktor Bjarki Daðason ('47)
17. Adam Örn Arnarson
25. Freyr Sigurðsson ('59)
31. Þengill Orrason
32. Aron Snær Ingason

Varamenn:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
10. Fred Saraiva ('59)
11. Magnús Þórðarson ('47)
14. Hlynur Atli Magnússon
20. Egill Otti Vilhjálmsson ('47)
27. Anton Ari Bjarkason ('63)
28. Tiago Fernandes ('59)

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Hinrik Valur Þorvaldsson
Gareth Thomas Owen
Friðgeir Bergsteinsson

Gul spjöld:
Orri Sigurjónsson ('44)

Rauð spjöld: