Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. janúar 2014 16:30
Daníel Freyr Jónsson
Liverpool að fá leikmann Basel
Mohamed Salah.
Mohamed Salah.
Mynd: Getty Images
Liverpool gæti fengið til sín egypska vængmanninn Mohamed Salah á næstu dögum samkvæmt enskum fjölmiðlum.

Salah leikur með Basel og er talið að 7 milljónir punda þurfi til að leysa hann undan samningi hjá svissneska félaginu.

Staðarblaðið Liverpool Echo greinir frá því að félögin séu ekki komin að samkomulagi um kaupverðið og að töluvert beri á milli þeirra.

Þrátt fyrir það gæti Salah ferðast til Englands síðar í vikunni til að gangast undir læknisskoðun og ræða samningsmál sín.

Salah er 21 árs gamall og hefur skorað 17 mörk í 27 leikjum með landsliði Egyptalands.
Athugasemdir
banner