Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. janúar 2018 16:33
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Everton og Man Utd: Gylfi á bekknum
Gylfi byrjar á bekknum hjá Everton.
Gylfi byrjar á bekknum hjá Everton.
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku er fjarri góðu gamni hjá Manchester United sem mætir Everton á Goodison Park 17:30. en hann mun missa af næstu tveimur leikjum eftir að hafa hlotið höfuðmeiðsli í jafnteflinu gegn Southampton.

Anthony Martial er í fremstu víglínu hjá Rauðu djöflunum.

Ashley Young hefur afplánun á þriggja leikja banni og þá er Zlatan Ibrahimovic frá í mánuð vegna hnémeiðsla. Michael Carrick, Marouane Fellaini og Eric Bailly eru enn allir á meiðslalistanum.

United er í þriðja sæti en Everton í því níunda. Gylfi Þór Sigurðsson er á varamannabekknum hjá þeim bláu.

Byrjunarlið Everton: Pickford, Schneiderlin, Keane, Williams, Bolasie, Rooney, Martina, Niasse, Davies, Vlasic, Holgate.

Byrjunarlið Manchester United: De Gea, Lindelöf, Jones, Rojo, Pogba, Mata, Martial, Lingard, Herrera, Shaw, Matic.

Athugasemdir
banner