Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. janúar 2018 05:55
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
England í dag - Liverpool og Man Utd heimsækja Íslendingana
Jóhann Berg mætti Man Utd um daginn, nú er komið að Liverpool
Jóhann Berg mætti Man Utd um daginn, nú er komið að Liverpool
Mynd: Getty Images
Góðan daginn gott fólk og gleðilegt nýtt ár!

Líkt og venjulega fer enski boltinn ekkert í frí þrátt fyrir hátíðirnar og eru fimm leikir í dag.

Lang flest augu Íslendinga verða á tveimur leikjum í dag.

Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson hefur staðið sig vel í liði Burnley að undanförnu. Þeir fá Liverpool í heimsókn í hörkuleik.

Liðsfélagi Jóhanns Bergs í landsliðinu Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Everton fá einnig risa lið í heimsókn en lið Manchester United mun kíkja í heimsókn á Goodison Park.

Mánudagur 1. janúar
12:30 Brighton - Bournemouth
15:00 Burnley - Liverpool
15:00 Leicester - Huddersfield
15:00 Stoke - Newcastle
17:30 Everton - Manchester United
Athugasemdir
banner
banner