mán 01. janúar 2018 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísrael: Viðar gerði eina markið í góðum sigri
Mynd: .
Sakhnin 0 - 1 Maccabi Tel Aviv
0-1 Viðar Örn Kjartansson ('56, víti)

Viðar Örn Kjartansson gerði eina mark leiksins er Maccabi Tel Aviv lagði Bnei Sakhnin í ísraelska boltanum.

Viðar gerði markið snemma í síðari hálfleik úr tvítekinni vítaspyrnu. Markvörðurinn varði fyrstu tilraun Viðars en var kominn rúman meter af marklínunni áður en sóknarmaðurinn sparkaði knettinum.

Viðari brást ekki bogalistin í seinni tilraun og mikilvæg þrjú stig skila sér heim til Tel Aviv.

Maccabi er í fjórða sæti í toppbaráttunni, fjórum stigum frá toppliði Hapoel Beer Sheva.


Athugasemdir
banner
banner
banner