mán 01. janúar 2018 12:04
Magnús Már Einarsson
Ronaldo ætlar að búa til kvikmyndir
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, er með ákveðnar hugmyndir um það hvað hann vill gera þegar fótboltaferlinum lýkur. Portúgalinn hefur þá hug á að búa til kvikmyndir.

„Ég er núna að einbeita mér að fótboltaferlinum sem lýkur einn daginn. VIð þurfum öll að hætta einn daginn," sagði Ronaldo.

„Ég veit að sá dagur kemur en núna er ég að njóta augnabliksins. Eftir að ég hætti þá held ég að ég muni eiga gott líf. Ég segi þetta ekki bara út af peningum."

„Ég vil prófa aðra hluti, til dæmis búa til kvikmyndir. Ég byrjaði að skipuleggja framtíð mína þegar ég var 27, 28 ára - fyrir löngu síðan."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner