Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 01. febrúar 2013 11:54
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Sterling ákærður - Sakaður um líkamsárás
Raheem Sterling, kantmaður Liverpool, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á 27 ára gamla konu.

Sterling er sakaður um að hafa ráðist á konuna þann 2. nóvember síðastliðinn.

Konan, sem þekkir Sterling, varð fyrir smávægilegum meiðslum í andliti en Sterling segist vera saklaus.

,,Ég hef fengið þau skilaboð að Herra Sterling muni lýsa sig saklausan af þessari ákæru," sagði Mick Hogan lögfræðingur Sterling.

Sterling var 17 ára þegar árásin átti sér stað en hann er orðinn 18 ára núna og því verður málið tekið fyrir í réttarsal þann 22. febrúar næstkomandi.
Slapp
banner
banner