Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 01. febrúar 2015 09:30
Arnar Geir Halldórsson
Aston Villa og WBA berjast um Capoue
Capoue gæti yfirgefið Tottenham í dag
Capoue gæti yfirgefið Tottenham í dag
Mynd: Getty Images
Etienne Capoue mun að öllum líkindum yfirgefa Tottenham á næstu klukkutímum.

Vitað er af áhuga nokkura liða en Real Sociedad og Sevilla hafa verið orðuð við þennan franska miðjumann undanfarið. Nú hafa nágrannaliðin Aston Villa og WBA bæst í hópinn og er talið líklegt að Tottenham muni lána hann út áður en glugginn lokar.

Capoue var keyptur á 9 milljónir punda til Tottenham árið 2013 en hefur aldrei náð að festa sig í sessi á White Hart Lane. Hann var ekki í leikmannahópi liðsins í gær þegar liðið vann 3-0 sigur á WBA.

Capoue, sem er 26 ára gamall, á 7 landsleiki að baki fyrir A-landslið Frakklands.
Athugasemdir
banner
banner
banner