Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. febrúar 2015 16:11
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Aron skoraði með hælnum gegn Heracles
Aron Jóhannsson er búinn að skora
Aron Jóhannsson er búinn að skora
Mynd: Getty Images
Aron Jóhannsson, framherji AZ Alkmaar í Hollandi, er búinn að koma liðinu yfir gegn Heracles í hollensku deildinni.

AZ átti hornspyrnu sem datt út í teiginn á Nemanja Gudelj. Hann ákvað að taka bakfallsspyrnu sem rataði á Aron en hann notaði hælinn á sér til þess að koma boltanum örugglega í netið.

Aron hefur nú skorað 3 mörk í hollensku deildinni í tíu leikjum en honum hefur gengið illa að finna sitt gamla form hjá AZ. Hann gerði 17 mörk í 32 leikjum á síðustu leiktíð en meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner