Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. febrúar 2015 11:31
Brynjar Ingi Erluson
Pirlo: Roma mun halda áfram að pressa á okkur
Mynd: Getty Images
Andrea Pirlo, leikmaður Juventus á Ítalíu, segir að AS Roma komi til með að setja pressu á liðið fram að síðasta leik.

Juventus og Roma berjast um titilinn þetta árið eins og á síðasta ári en Juventus hefur unnið síðustu þrjá titla.

Liðið er með sex stiga forskot á Roma sem er í öðru sæti en Pirlo, sem hefur verið mikilvægur hlekkur í liði í Juventus telur að pressan verði á þeim fram að síðasta leik.

,,Við verðum að halda áfram að vinna leiki til að halda Roma frá okkur. Þetta forskot skiptir engu. Roma er sterkt lið og kemur liðið til með að halda áfram að pressa á okkur," sagði Pirlo.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner