sun 01. febrúar 2015 06:30
Arnar Geir Halldórsson
Pochettino: Kane á bara eftir að verða betri
Sjóðandi heitur
Sjóðandi heitur
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var ánægður með sína menn eftir góðan 3-0 útisigur á WBA í gær.

Harry Kane skoraði tvö mörk í leiknum og er nú kominn með tíu deildarmörk á tímabilinu. Einnig hefur hann verið iðinn við kolann í öðrum keppnum og raunar verið magnaður á þessari leiktíð.

,,Það er gott fyrir hann, gott fyrir liðið og gott fyrir okkur. Þetta var frábær frammistaða hjá liðinu og þegar framherjar skora er það alltaf gott."

,,En ég verð að einbeita mér að því að hjálpa honum að bæta sig. Hann er ungur og á bara eftir að verða betri en hann verður að halda áfram að leggja hart að sér." sagði Argentínumaðurinn ákveðinn.

Þetta var sjötti sigur Tottenham í síðustu átta leikjum og ekkert því til fyrirstöðu að liðið blandi sér í baráttuna um Meistaradeildarsæti.

Athugasemdir
banner
banner
banner