sun 01. mars 2015 13:46
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Arsenal og Everton: Mertesacker á bekkinn
Mertesacker missir sæti sitt í Arsenal liðinu í dag.
Mertesacker missir sæti sitt í Arsenal liðinu í dag.
Mynd: Getty Images
Arsenal og Everton mætast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14:00. Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér að neðan.

Per Mertesacker varnarmaður Arsenal missir sæti sitt í liðinu eftir slaka frammistöðu í Meistaradeildartapinu gegn Monaco en Gabriel Paulista leysir stöðu hans. Danny Welbeck fer líka á bekkinn en Olivier Giroud sem klúðraði nokkrum færum gegn Monaco heldur sæti sínu. Alex Olxade-Chamberlain kemur inn fyrir Welbeck.

Jon Stones, Ross Barkley og Muhamed Besic koma aftur inn í Everton liðið frá leiknum gegn Young Boys í Evrópudeildinni.

Arsenal Ospina, Bellerin, Gabriel, Koscielny, Gibbs, Coquelin, Cazorla, Oxlade-Chamberlain, Ozil, Sanchez, Giroud.

Everton Howard, Coleman, Jagielka, Stones, Garbutt, Barry, McCarthy, Besic, Mirallas, Barkley, Lukaku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner