Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 01. mars 2015 15:59
Hafliði Breiðfjörð
England: Giroud og Rosicky skutu Arsenal í þriðja sætið
Giroud skoraði í fyrri hálfleik.
Giroud skoraði í fyrri hálfleik.
Mynd: Getty Images
Arsenal 2 - 0 Everton
1-0 Olivier Giroud ('39 )
2-0 Tomas Rosicky ('89)

Arsenal er komið í þriðja sætið í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið vann 2-0 sigur á Everton á Emirates leikvangnum í Lundúnum.

Fyrra mark leiksins skoraði Giroud seint í fyrri hálfleiknum. Mesut Özil tók á hornspyrnu sem barst til Giroud sem stýrði boltanum í markið á laglegan hátt. Þriðja stoðsendind Özil í síðustu þremur leikjum sem hann hefur byrjað.

Tomas Rosicky skoraði svo annað markið með góðu skoti fyrir utan teig þegar venjulegum leiktíma var að ljúka. Skotið fór í Phil Jagielka og þaðan í markið en aftur fær Özil stoðsendinguna.

Meira var ekki skorað í leiknum. Arsenal sótti gríðarlega mikilvæg þrjú stig en baráttan um þriðja sætið er bara að harðna.

Með sigrinum fór Arsenal í 3. sætið með 51 stig, og uppfyrir Manchester United sem er með 50.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner