Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 01. mars 2015 10:00
Hafliði Breiðfjörð
United Silicon á búningum Keflavíkur næstu árin
Einar Helgi Aðalbjörnsson meðstjórnandi,  Rut Ragnarsdóttir skrifstofustjóri USi  Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildar, Magnús Garðarsson framkvæmdastjóri USi og Kjartan Steinarsson varaformaður knattspyrnudeildar.
Einar Helgi Aðalbjörnsson meðstjórnandi, Rut Ragnarsdóttir skrifstofustjóri USi Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildar, Magnús Garðarsson framkvæmdastjóri USi og Kjartan Steinarsson varaformaður knattspyrnudeildar.
Mynd: Aðsend
Keflavík og United Silicon hafa gert með sér samstarfssamning sem gerir United Silicon að einum af þeirra allra stærstu samstarfsaðilum.

Samningurinn sem var undirritaður um helgina er til tveggja ára til að byrja með og munu knattspyrnu áhugamenn sjá merki USi á öllum keppnisbúningum deildarinnar.

United Silicon hefur verið að byggja kísliverksmiðju sína í Helguvík og framkvæmdir eru vel á veg komnar og hafa staðið yfir frá því í ágúst 2014 og stefnt er að hefja framleiðslu á kísil í maí 2016.

United Silicon er að stórum hluta til í eigu Íslendinga og finnst þeim það mjög mikilvægt að fyrirtækið taki þátt í samfélaginu í Reykjanesbæ og einnig að styðja við það öfluga barna og unglingastarf sem unnið er í Keflavík.

Knattspyrnudeildin er gríðarlega ánægð með að fá svona stóran og sterkan samstarfsaðila sem United Silicon er, en fyrirtækið hugsar sér að eiga langtíma samstarf með knattspyrnudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner