Það var stutt í glensið hjá Jose Mourinho, stjóra Chelsea, í úrslitaleik deildabikarsins þar sem hans menn mæta Tottenham.
Chelsea leiðir 2-0 þegar þetta er skrifað, en í stöðunni 1-0 snemma í seinni hálfleik ákvað Portúgalinn að bregða á leik.
Hann var með vatnsbrúsa í hendi og sá að myndatökumaður einn lá vel við höggi, svo hann sprautaði smá vatni á manninn.
Hann splæsti svo í eitt kvikindislegt glott.

Athugasemdir