John Terry, leikmaður Chelsea, útilokar ekki að hann fari í kínverska boltann þegar tímabilinu lýkur í vor.
Samningur hans við Chelsea rennur út í sumar og aðspurður segist hann ekki hafa hug á því að leggja skóna á hilluna.
Hinn 36 ára Terry hefur ekki viljað útiloka brottför til Kína en þó hefur hann látið hafa eftir sér að heæst vilji hann framlengja við Chelsea.
Terry hefur leikið allan sinn feril með Chelsea ef frá eru taldir sex leikir sem hann spilaði með Nottingham Forest á láni árið 2000.
Hann hefur spilað tæplega 500 leiki fyrir Chelsea.
Athugasemdir