Victor Moses hefur framlengt samning sinn við Chelsea til ársins 2021.
Fyrri samningur Moses átti að renna út árið 2019.
Eftir að hafa farið til Liverpool, Stoke og West Ham á láni undanfarin ár þá hefur Moses náð að festa sig í sessi hjá toppliði Chelsea á þessu tímabili.

Hinn 26 ára gamli Moses hefur slegið í gegn í nýrri stöðu í 3-4-3 leikkerfi Chelsea.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að vera hér í nokkur ár í viðbót," sagði Moses eftir undirskrift.
Athugasemdir