Grindvíkingar hafa fengið Úlfar Hrafn Pálsson í sínar raðir frá Haukum.
Úlfar Hrafn hefur æft með Grindvíkingum undanfarnar vikur og hann hefur nú fengið félagaskipti.
Úlfar Hrafn hefur æft með Grindvíkingum undanfarnar vikur og hann hefur nú fengið félagaskipti.
Úlfar er uppalinn hjá Haukum en hann getur leikið í vinstri bakverði og á kantinum.
Þessi 26 ára gamli leikmaður spilaði ellefu leiki með Haukum í 1. deildinni í fyrra.
Úlfar hefur leikið allan sinn feril með Haukum fyrir utan sumarið 2012 þegar hann var á mála hjá Val.
Fyrr í vetur fór Ásgeir Þór Ingólfsson úr Haukum í Grindavík og nú hefur Úlfar Hrafn farið sömu leið en þeir félagar voru einnig báðir á mála hjá Val sumarið 2012.
Athugasemdir