Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 01. apríl 2016 13:15
Magnús Már Einarsson
Landsliðshópur kvenna - Sif Atla með á ný
Kvenaboltinn
Sif Atladóttir kemur inn í hópinn.
Sif Atladóttir kemur inn í hópinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katrín er ekki með vegna meiðsla.
Katrín er ekki með vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Hvíta-Rússlandi í mikilvægum leik í undankeppni EM þann 12. júní næstkomandi.

Sif Atladóttir kemur í fyrsta skipti í hópinn eftir hlé vegna barnsburðar. Sif spilaði síðast landsleik í júní árið 2014.

„Hún er komin í gott stand. Ég er búinn að sjá hana spila síðustu þrjá leiki með Kristianstad og við viljum fá hana til liðs við liðið núna. Hún er gríðarlega reynd og ef hún nær sínum besta leik fram á næstu mánuðum þá erum við að fá gríðarlega sterkan leikmann til baka," sagði Freyr á fréttamannafundi í dag.

Arna Sif Ásgrímsdóttir, Guðrún Arnardóttir, Hrafnhildur Hauksdóttir og Katrín Ómarsdóttir detta úr hópnum frá því á Algarve mótinu fyrr í mánuðinum.

Katrín er að jafna sig af meiðslum og Arna Sif er ekki með eftir að hafa fótbrotnað á Algarve.

Að öðru leyti er hópurinn sá sami og á Algarve. Reynsluboltinn Málfríður Erna Sigurðardóttir er því áfram í hópnum sem og hin unga og efnilega Andrea Rán Hauksdóttir.

Markmenn:
Guðbjörg Gunnarsdóttir (Djurgarden)
Sandra Sigurðardóttir (Valur)
Sonný Lára Þráinsdóttir (Breiðablik)

Varnarmenn:
Anna Björk Kristjánsdóttir (Örebro)
Glódís Perla Viggósdóttir (Eskilstuna)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Breiðablik)
Elísa Viðarsdóttir (Valur)
Sif Atladóttir (Kristianstad)
Málfríður Erna Sigurðardóttir (Breiðablik)

Miðjumenn:
Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik)
Sara Björk Gunnarsdóttir (FC Rosengard)
Andrea Rán Hauksdóttir (Breiðablik)
Sandra María Jessen (Leverkusen)
Dagný Brynjarsdóttir (Portland Thorns)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Stabæk)
Elín Metta Jensen (Valur)

Sóknarmenn:
Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur)
Hólmfríður Magnúsdóttir (Avaldsnes)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Fylkir)
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner