Það eru fimm dagar í að Besta deildin byrji og hér má sjá nokkrar sögur sem eru í gangi um möguleg félagaskipti fyrir gluggalok.
Þá eru einnig nokkrir slúðurmolar sem farið hafa milli manna.
Fyrrum landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið orðaður við ÍA frá því í desember. Rúnar fór í aðgerð í janúar og er að koma til baka. Eina sem er eftir er að tilkynna komu hans til félagsins.
FH er að kaupa Ísak Óla Ólafsson frá danska félaginu Esbjerg. Miðvörðurinn verður 23 ára í sumar og á hann að baki tvo A-landsleiki.
Bjarni Mark Duffield er leikmaður Start í Norgi og var á laugardag orðaður við Val. Það er ekki í fyrsta sinn í vetur sem hann hefur verið orðaður við Val. Bjarni getur bæði spilað sem miðvörður og á miðjunni.
Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Rosenborg og besti leikmaður Bestu deildarinnar 2022, var orðaður við mögulega heimkomu í Þungavigtinni á dögunum.
Það styrkir ekki stöðu Orra Hrafns Kjartanssonar í leikmannahópi Vals að Bjarni Mark sé á leiðinni. Það þykir ansi líklegt að einhver sé á útleið hjá Val og er Orri Hrafn líklegur. Orri Sigurður Ómarsson hefur spilað lítið í vetur og gæti einnig verið á útleið. Bjarni Guðjón Brynjólfsson gæti verið lánaður í annað félag.
Athugasemdir