Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   sun 01. maí 2016 18:40
Tómas Meyer
Gregg Ryder: Vorum jafnokar meistaranna
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Ég er ánægður með frammistöðu minna manna, varnarskipulagið og framlagið en við verðum að gera betur í að klára færin," sagði Gregg Ryder þjálfari Þróttar eftir 3-0 tap heima gegn FH í opnunarleik Pepsi-deildar karla í dag.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  3 FH

„Mér fannst ekki margt vera gert rangt hjá okkur utan þess að nýta færin. Mér fannst við vera betra lið en FH í fyrri hálfleik, stýrðum leiknum og sköpuðum fleiri færi en nýttum þau ekki."

„Það er margt gott að taka út úr þessum leik. Við vorum jafnokar meistaranna lungað úr leiknum en við verðum að skora mörk og það mun gerast. Það féll ekki með okkur næst getum við skorað þrjú eða fjögur."

„Markvörðurinn þeirra sýndi mikil gæði, hann er frábær markvörður sem varði frábærlega. Á öðrum degi hefðum við skorað 3-4 mörk og fengið eitthvað út úr leiknum en svona er fótboltinn."


Þróttur tók undarlega hornspyrnu í fyrri hálfleiknum þar sem allir leikmenn voru á miðjum vellinum en brunuðu svo inn í teiginn en náðu ekki boltanum. Hvað var þetta?

„Ég verð að hrósa Binna (Brynjar Gestsson aðstoðarþjálfari) fyrir þetta. Hann gerði þetta gegn mér í fyrra þegar hann stýrði Fjarðabyggð og svo gerðum við það gegn honum. Þetta er áhugavert og öðruvísi en það þarf að prófa eitthvað öðruvísi á móti þessum góðu liðum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner