Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. maí 2016 12:25
Arnar Geir Halldórsson
Ítalía: Juventus ekki í vandræðum með Carpi
Yfirburðarlið í ítalska boltanum
Yfirburðarlið í ítalska boltanum
Mynd: Getty Images
Juventus 2 - 0 Carpi
1-0 Hernanes ('42 )
2-0 Simone Zaza ('80 )

Nýkrýndir Ítalíumeistarar Juventus áttu ekki í miklum vandræðum með Carpi þegar liðin mættust í fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum.

Það tók heimamenn þó nánast allan fyrri hálfleikinn að brjóta varnarmúr Carpi á bak aftur en brasilíski miðjumaðurinn Hernanes kom Juventus yfir á 42.mínútu.

Simone Zaza innsiglaði svo sigur Juventus þegar hann skoraði tíu mínútum fyrir leikslok.

Carpi því enn í bullandi fallhættu en liðið er þrem stigum frá fallsvæðinu og eiga Palermo og Frosinone, sem sitja í fallsætum, einn leik til góða á Carpi.
Athugasemdir
banner
banner