Ronald Koeman, stjóri Southampton, var að vonum sáttur eftir 4-2 sigur liðsins á Manchester City í dag.
Sadio Mane skoraði þrennu fyrir Southampton í leiknum, en Koeman hrósaði liðinu gríðarlega í leikslok.
Sadio Mane skoraði þrennu fyrir Southampton í leiknum, en Koeman hrósaði liðinu gríðarlega í leikslok.
„Þetta var frábær leikur. Kannski bestu fyrstu 45 mínúturnar hjá okkur á tímabilinu. Við skoruðum nokkur góð mörk, en við spilum með mikið sjálfstraust á heimavelli,“ sagði Koeman.
„Við sköpuðum svo mörg vandamál fyrir þá, en hraðinn var lykilinn að því að vinna leikinn. Sadio hafði stór áhrif á úrslitin og við stóðum okkur bara gríðarlega vel.“
„Við erum virkilega með lið af leikmönnum sem eru 'mótiveraðir' og okkur langar að spila góðan fótbolta. Við erum að berjast fyrir sæti í Evrópu og það er það sem okkur langar að gera. Tveir leikir eftir og við erum ennþá að berjast fyrir einhverju.“
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir