Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. maí 2016 23:51
Magnús Már Einarsson
Myndband: Ólafsvíkingar fögnuðu af krafti
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Nýliðar Víkings frá Ólafsvík unnu óvæntan 2-1 útisigur á Breiðabliki í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.

Tvö glæsileg mörk frá Þorsteini Má Ragnarssyni og Kenan Turudija tryggðu sigurinn.

Ólafsvíkingar þurftu að bíða þar til í níundu umferð eftir fyrsta sigrinum í Pepsi-deildinni 2013 en í ár stimpluðu nýliðarnir þeir sig strax inn.

Ólsarar fögnuðu sigrinum vel og innilega í klefanum eftir leik eins og sjá má á myndbandi sem birtist á Twitter síðu Víkings.

Hér að neðan má sjá fögnuðinn.



Athugasemdir
banner
banner