Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 01. maí 2016 21:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pepsi-deildin: Þórir Guðjóns með tvennu í sigri á Val
Þórir Guðjónsson skoraði bæði mörk Fjölnis
Þórir Guðjónsson skoraði bæði mörk Fjölnis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 1 - 2 Fjölnir
0-1 Þórir Guðjónsson ('37, víti )
0-2 Þórir Guðjónsson ('69 )
1-2 Guðjón Pétur Lýðsson ('80 )
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn

Síðasta leik dagsins í Pepsi-deild karla var að ljúka, en Fjölnir heimsótti þá Val á Hlíðarenda.

Það dró fyrst til tíðinda undir lok fyrri hálfleiks þegar Ingvar Þór Kale, markvörður Vals, braut klaufalega Martin Lund. Þórir Guðjónsson fór á punktinn og skoraði, en Ingvar fór í rétt horn.

Staðan var 1-0 fyrir Fjölnismenn í hálfleik, en um miðjan seinni hálfleikinn skoraði Þórir aftur eftir skalla frá Gunnari Má Guðmundssyni.

Guðjón Pétur Lýðsson náði að minnka muninn fyrir Valsmenn þegar tíu mínútur voru til leiksloka, en lengra komust Valsmenn ekki og sigur Fjölnismanna því staðreynd.

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner