Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. maí 2016 18:23
Magnús Már Einarsson
Sonni Ragnar farinn frá FH á láni
Sonni Ragnar Nattestad.
Sonni Ragnar Nattestad.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sonni Ragnar Nattestad, varnarmaður FH, er farinn á lán í færeysku úrvalsdeildina.

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, staðfesti þetta eftir 3-0 sigur liðsins á Þrótti í dag.

Sonni Ragnar kom til FH í vetur en hann er færeyskur landsliðsmaður.

„Hann er kominn til Færeyja og verður á láni þar," sagði Heimir í viðtali við Tómas Meyer hjá Fótbolta.net.

FH-ingar hafa því lánað tvo miðverði með stuttu millibili því í gær fór Guðmann Þórisson til KA á láni.

Bergsveinn Ólafsson og Kassim Doumbia stóðu vaktina í hjarta varnarinnar í dag en varnarmaðurinn Brynjar Ásgeir Guðmundsson var einnig á bekknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner