Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 01. maí 2016 18:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Getafe með mikilvægan sigur á Deportivo
Pedro Leon kom Getafe yfir
Pedro Leon kom Getafe yfir
Mynd: Getty Images
Deportivo 0 - 2 Getafe
0-1 Pedro Leon ('41 )
0-2 Carlos Vigaray ('85 )
Rautt spjald:Celso Borges, Deportivo ('64)

Þriðja leik dagsins í La Liga á Spáni var að ljúka, en Getafe sótti Deportivo La Coruna heim.

Getafe hefur verið í vandræðum á þessu tímabili, en þeir náðu forystunni rétt fyrir leikhlé þegar Pedro Leon skoraði.

Staðan var því 1-0 í hálfleik fyrir Getafe. Um miðjan seinni hálfleikinn fékk Celso Borges, leikmaður Deportivo að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Getafe nýtti sér það og bætti við öðru marki þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Carlos Vigaray var þar að verki og gríðarlega mikilvægur 2-0 sigur Getafe staðreynd.

Getafe jafnaði Rayo Vallecano og Sporting Gijon að stigum með sigrinum, en liðin eru í mikilli fallbaráttu. Deportivo er ennþá í hættu fjórum stigum frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir.
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 23 14 5 4 43 20 +23 47
2 FK Krasnodar 23 12 7 4 36 23 +13 43
3 Dinamo 23 10 8 5 36 31 +5 38
4 CSKA 23 9 10 4 43 31 +12 37
5 Lokomotiv 23 9 10 4 38 31 +7 37
6 Kr. Sovetov 23 10 6 7 41 33 +8 36
7 Spartak 23 10 5 8 29 28 +1 35
8 Rostov 23 9 7 7 35 33 +2 34
9 Rubin 23 9 5 9 20 29 -9 32
10 Nizhnyi Novgorod 23 8 4 11 21 26 -5 28
11 Orenburg 23 6 8 9 27 30 -3 26
12 Fakel 23 6 8 9 19 25 -6 26
13 Ural 23 6 5 12 22 36 -14 23
14 Baltica 23 5 5 13 21 27 -6 20
15 Akhmat Groznyi 23 5 5 13 21 36 -15 20
16 Sochi 23 4 6 13 24 37 -13 18
Athugasemdir
banner
banner