Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. maí 2016 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wigan upp í Championship á nýjan leik
Leikmenn Wigan fagna hér eftir sigurinn í gær
Leikmenn Wigan fagna hér eftir sigurinn í gær
Mynd: Getty Images
Blackpool 0 - 4 Wigan
0-1 Chris McCann ('60 )
0-2 Yannick Wildschut ('70 )
0-3 Yannick Wildschut ('72 )
0-4 Will Grigg ('85 )

Wigan Athletic er komið upp í Championship-deildina á nýjan leik eftir sigur 4-0 sigur á Blackpool í gær.

Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Chris McCann eftir klukkutíma leik og kom Wigan yfir. Yannick Wildschut bætti síðan við tveimur mörkum áður en Will Grigg kláraði leikinn endanlega.

4-0 sigur Wigan staðreynd, en fyrir ekki svo löngu lék liðið í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur þó gengið í gegnum erfiða tíma undanfarin og því eru þetta miklar gleðifréttir.

Wigan hefur aðeins tapað einu sinni síðan liðið tapaði gegn Blackpool í desember á síðasta ári og er liðið svo gott sem búið að vinna League One deildina á Englandi þegar ein umferð er eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner