Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
   mið 01. maí 2024 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fluminense búið að hafa samband við Thiago Silva - Mörg tilboð á borðinu
Mynd: Getty Images

Brasilíski miðvörðurinn Thiago Silva mun yfirgefa Chelsea eftir tímabilið þegar samningur hans við félagið rennur út.


Hann hefur lengi verið orðaður við Fluminense í heimalndinu en félagið hefur haft samband við hann. Frá þessu greinir Fabrizio Romano.

Silva hefur úr mörgum tilboðum að velja bæði í Evrópu og Brasilíu.

Þessi 39 ára gamli miðvörður er uppalinn hjá Fluminense en gekk til liðs við AC Milan árið 2009. Hann gekk síðan til liðs við PSG árið 2012 þangað til hann færði sig yfir til Englands og skrifaði undir hjá Chelsea árið 2020.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner