Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. júlí 2013 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild kvenna: Auðveldur sigur Hauka á Ólafsvík
Mynd: Haukar
Víkingur Ólafsvík 0 - 5 Haukar
0-1 Leikmaður óþekktur ('26)
0-2 Leikmaður óþekktur ('52)
0-3 Leikmaður óþekktur ('60)
0-4 Hulda Sigurðardóttir ('76)
0-5 Hulda Sigurðardóttir ('94)

Ólafsvíkingar fengu Hauka í heimsókn í fyrstu deild kvenna en fyrir leikinn voru Haukar með níu stig og Víkingar með fimm.

Haukar komust yfir í fyrri hálfleik og voru marki yfir þegar flautað var til leikhlés.

Snemma í síðari hálfleik bættust tvö Haukamörk til viðbótar áður en Hulda Sigurðardóttir innsiglaði öruggan sigur með tveimur síðustu mörkum leiksins.

Haukar eru nú fjórum stigum frá toppliðunum tveimur, en Fylkir, annað toppliðanna, á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner