Evrópudeildarmeistarar Sevilla hafa komist að samkomulagi við AC Milan um kaup á franska varnarmanninum Adil Rami.
Á heimasíðu Sevilla segir að tilboð félagsins hafi verið samþykkt og hann muni gangast undir læknisskoðun í næstu viku þegar hann kemur til baka úr sumarfríi sínu.
Í kjölfarið mun hann gera fjögurra ára samning við Sevilla en kaupverðið er talið vera tæpar 4 milljónir evra.
Rami þekkir vel til La Liga en hann lék með Valencia í þrjú ár við góðan orðstír áður en hann gekk í raðir AC Milan fyrir einu og hálfu ári. Þar hefur hann átt erfitt uppdráttar líkt og aðrir leikmenn félagsins.
Sevilla hefur misst sterka leikmenn í sumar en Rami gæti orðið fyrsti leikmaðurinn sem liðið kaupir. Hins vegar er stjörnuframherji félagsins, Carlos Bacca, á leið í hina áttina en hann mun að öllum líkindum ganga í raðir AC Milan á næstu dögum.
Athugasemdir