Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júlí 2015 21:00
Arnar Geir Halldórsson
Arturo Vidal búinn að semja við Real Madrid?
Endar þessi á Bernabeu?
Endar þessi á Bernabeu?
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal er búinn að samþykkja samningstilboð Real Madrid samkvæmt spænska miðlinum Sport.

Samkvæmt fréttinni er Vidal tilbúinn að gera fimm ára samning við spænska stórveldið og hafa umboðsmenn kappans unnið hörðum höndum við samningagerðina undanfarna daga.

Madrídarliðið á þó enn eftir að ná samkomulagi við Juventus en vitað er að ítalska liðið mun ekki selja kappann nema fyrir háa upphæð.

Heimildir Sport herma að gengið verði frá vistaskiptunum eftir úrslitaleik Suður-Ameríkubikarsins en Vidal er lykiilmaður í liði Síle sem mætir Argentínu í úrslitaleik næstkomandi laugardag.

Vidal er 28 ára gamall en hann hefur verið orðaður við Man Utd og Arsenal í gríð og erg undanfarna daga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner