Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. júlí 2015 11:15
Elvar Geir Magnússon
Douglas Costa til Bayern München (Staðfest)
Douglas Costa.
Douglas Costa.
Mynd: Getty Images
Bayern München hefur staðfest kaup sín á sóknarleikmanninum brasilíska Douglas Costa sem hefur skrifað undir samning til 2020.

Costa kemur frá Shakhtar Donetsk en hann mun klæðast treyju númer 11 hjá Bæjurum og mun vera í harðri samkeppni við Arjen Robben og Franck Ribery. Þeir báðir hafa verið inn og út vegna meiðsla síðustu tímabil.

Fyrsta æfing Costa með Bayern verður 11. júlí en búast má við því að við fáum að sjá hann spila á Audi-æfingamótinu snemma í ágúst.

Talið er að Bayern hafi borgað 30 milljónir evra fyrir þennan mikils metna Brasilíumann sem var í landsliðshópi Brasilíu sem féll úr leik í 8-liða úrslitum Suður-Ameríku bikarsins.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner