Swansea hefur keypt framherjann Eder frá Braga í Portúgal en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Eder skrifaði undir þriggja ára samning við Swansea.
Á síðasta tímabili skoraði Eder tíu mörk í 29 leikjum með Braga þegar liðið endaði í fjórða sæti í portúgölsku úrvalsdeildinni.
Eder skrifaði undir þriggja ára samning við Swansea.
Á síðasta tímabili skoraði Eder tíu mörk í 29 leikjum með Braga þegar liðið endaði í fjórða sæti í portúgölsku úrvalsdeildinni.
„Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir hjá Swansea. Þetta er stórt félag og hef trú á að ég geti bætt mig sem fótboltamaður hér," sagði Eder.
Eder mun berjast við Bafetimbi Gomis og Marvin Emnes um sæti í framlínu Swansea.
Athugasemdir