Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júlí 2015 22:26
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Vísir 
Hólmbert Aron Friðjónsson í KR (Staðfest)
Hólmbert snýr aftur í Pepsi deildina
Hólmbert snýr aftur í Pepsi deildina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert Aron Friðjónsson hefur gert tveggja og hálfs árs samning við KR. Frá þessu var greint á Vísi nú rétt í þessu.

Hólmbert verður löglegur með KR í Pepsi-deildinni þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí næstkomandi.

Líkt og við sögðum frá í gær var líklegast að hann myndi ganga í raðir Vesturbæjarliðsins en Hólmbert átti einnig í viðræðum við Breiðablik, Val og Stjörnuna.

Hólmbert var valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar 2013 þegar hann fór á kostum með Fram, hann skoraði 10 mörk í 21 leik í Pepsi-deildinni, en í kjölfarið fór hann til Celtic í Skotlandi.

Hólmberti tókst ekki að brjóta sér leið inn í aðallið Celtic og var lánaður til Bröndby í fyrra.

Hann hefur nú ákveðið að koma aftur heim og mun leika með KR til ársins 2017 hið minnsta.

Athugasemdir
banner
banner
banner