Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júlí 2015 11:07
Elvar Geir Magnússon
ÍBV samdi við spænskan framherja (Staðfest)
Jose Enrique Vegara Seoane með bros á vör.
Jose Enrique Vegara Seoane með bros á vör.
Mynd: ÍBV
Spænskur sóknarmaður fær leikheimild með ÍBV þann 15. júlí en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem sjá má hér að neðan.

ÍBV er í ellefta sæti Pepsi-deildarinnar að loknum tíu umferðum.

ÍBV semur við Spánverja
Knattspyrnuráð karla ÍBV hefur gengið frá samningi við Jose Enrique Vegara Seoane og gildir samningurinn til loka tímabilsins. Leikmaðurinn er 26 ára og kemur frá Spáni en er að auki með Bandarískt vegabréf.

Jose kom á reynslu til félagsins fyrr í sumar þar sem að hann stóð sig vel á æfingum en leikmaðurinn er sóknarmaður sem einnig getur leyst stöðu framliggjandi miðjumanns. Leikmaðurinn hefur undanfarin ár spilað í Bandaríkjunum með liðum San Jacinto og Austin Aztex.

Knattspyrnuráð ÍBV býður Sito eins og hann er jafnan kallaður velkominn á Eyjuna fögru og væntir mikils af honum í baráttunni sem framundan er.

ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner