Inter hefur samþykkt tólf milljóna punda tilboð frá Stoke í Xherdan Shaqiri. Sky Italia greinir frá þessu.
Shaqiri kom til Inter frá FC Bayern í byrjun árs en Stoke hafði einnig sýnt honum áhuga þá.
Stoke vonast nú til að ná að krækja í Svisslendinginn en ef kaupin ganga í gegn verður hann dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Peter Crouch er núna dýrasti leikmaðurinn í sögu Stoke en hann kostaði félagið tíu milljónir punda þegar hann kom frá Tottenham árið 2011.
Athugasemdir