Mikil eftirvænting er fyrir næsta FIFA tölvuleik, en FIFA er einn af stærstu tölvuleikjum sögunnar og selst í milljónum eintaka á hverju ári.
FIFA kemur út á hverju hausti þegar nýtt tímabil er komið af stað í helstu deildum Evrópu.
FIFA kemur út á hverju hausti þegar nýtt tímabil er komið af stað í helstu deildum Evrópu.
Á hverju ári breytist leikurinn og þó að FIFA leikirnir séu svipaðir þróast þeir alltaf mikið á milli ára og þá sérstaklega með komu nýrra leikjatölvna á borð við PlayStation 4 og Xbox One.
Hér fyrir neðan má sjá eina af breytingunum sem verður fyrir næstu útgáfu FIFA, eða FIFA 16, og virðist breytingin vera gífurlega stór og unnin í miklu samstarfi við argentínsku stórstjörnuna Lionel Messi.
Athugasemdir