Southampton hefur ákveðið að leysa framherjann Dani Osvaldo undan samningi.
Osvaldo kom til Southampton frá Roma á 15 milljónir punda árið 2013.
Hann náði þó einungis að leika 14 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Southampton.
Osvaldo kom til Southampton frá Roma á 15 milljónir punda árið 2013.
Hann náði þó einungis að leika 14 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Southampton.
Í janúar 2014 lenti hann í slagsmálum við liðsfélaga sinn Jose Fonte og síðan þá hefur hann ekkert spilað með Southampton.
Argentínumaðurinn hefur verið í láni hjá Boca Juniors í heimalandi sínu undanfarna mánuði en hann var einnig í láni hjá Inter á síðasta tímabili sem og hjá Juventus í nokkra mánuði 2014.
Athugasemdir