Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júlí 2015 11:25
Magnús Már Einarsson
Undanúrslit á EM U17 kvenna í dag - Fjör á Hlíðarenda
Ísland fagnar marki á EM á dögunum.
Ísland fagnar marki á EM á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Undanúrslit EM U17 kvenna fara fram í dag, miðvikudaginn 1. júlí, á Valsvellinum við Hlíðarenda. Kl. 13:00 mætast Spánn og Frakkland og kl. 19:00 mætast Sviss og Þýskaland.

Fyrir leikina verða knattþrautir og hoppukastali í boði fyrir krakka, landsliðskonur mæta á svæðið, boðið verður upp á grillaðar pylsur og ávaxtasafa og hægt verður að taka þátt í happdrætti þar sem vinningar eru miðar á landsleiki með A-landsliðum kvenna og karla.

Dagskrá hefst einum og hálfum tíma áður en leikir hefjast.

Nýtum tækifærið, mætum á völlinn og sjáum efnilegustu stelpur Evrópu leika listir sínar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner