Aaron Ramsey, leikmaður Wales, verður í leikbanni í undanúrslitunum ef Wales nær að sigra Belgíu í átta liða úrslitunum í kvöld.
Ramsey fékk gult spjald þegar boltinn fór í höndina á honum en hann var á gulu spjaldi fyrir leikinn.
Spjöldin þurrkast út eftir átta liða úrslitin en þeir sem eru á gulu spjaldi og fá annað í átta liða úrslitunum fara í bann.
Þegar þetta er skrifað er staðan 2-1 fyrir Wales og tíu mínútur eftir.
Liðið sem vinnur mætir Portúgal í undanúrslitunum.
Athugasemdir