Crystal Palace hefur keypt Andros Townsend frá Newcastle á þrettán milljónir punda.
Townsend kom til Newcastle frá Tottenham í janúar síðastliðnum en hann náði ekki að hjálpa fyrrnefnda liðinu að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Townsend skoraði fjögur mörk í þrettán leikjum með Newcastle en það dugði ekki til.

Townsend var með riftunarákvæði í samningi sínum upp á þrettán milljónir punda og Crystal Palace nýtti sér það.
Hinn 24 ára gamli Townsend var í 26-manna hóp hjá enska landsliðinu fyrir EM en hann missti sæti sitt þegar hópurinn var skorinn niður í 23 menn.
Athugasemdir