Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2016 09:01
Magnús Már Einarsson
Annecy
Birkir Már klár í Payet: Þarf að loka á hægri fótinn
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður íslenska landsliðsins, segist vera klár í baráttuna við Dimitri Payet, leikmann Frakka, í 8-liða úrslitum EM á sunnudag.

Payet hefur skorað tvö mörk á EM og verið í lykilhlutverki í liði Frakka. Hann átti einnig frábært tímabil með West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

Payet er á vinstri kantinum hjá Frökkum og Birkir Már mun því eiga í höggi við hann á sunnudag.

„Hann er auðvitað leikmaður með mikil gæði. Ég sé hann spila í hverri viku og hann spilar nánast alltaf vel," sagði Birkir Már á fréttamannafundi í dag.

„Þetta snýst um að vera grimmur og leyfa honum ekki að fara inn á völlinn og skjóta með hægri fæti. Ég vil frekar hafa hann á vinstri fætinum."

„Það er erfitt að finna veikleika hjá honum en ég verð að vera grimmur og leyfa honum ekki að skrúfa boltann í fjærhornið."


Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner