Chris Coleman, þjálfari Wales, var eðlilega í skýjunum eftir sigur Wales gegn Belgíu í 8-liða úrslitum EM í kvöld. Hann lét frá sér hjartnæm ummæli eftir leikinn.
"Leyfðu þér að dreyma. Ekki vera hræddur við að eiga drauma. Fyrir fjórum árum vorum við eins langt frá þessu og hægt er. En við leyfðum okkur að dreyma og sjáðu bara hvað gerðist." sagði Coleman eftir leikinn.
Wales mætir Portúgal í undanúrslitunum.
Athugasemdir