Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2016 11:40
Magnús Már Einarsson
Höfnuðu 38 milljóna punda tilboði í Ighalo
Mynd: Getty Images
Watford hefur hafnað 38 milljóna punda tilboði frá Shanghai SIPG í framherjann Odion Ighalo.

Það er nóg til hjá Shanghai SIPG en kínverska félagið keypti Hulk frá Zenit St. Pétursborg á 46,1 milljón punda í vikunni.

Shanghai vill líka fá Ighalo í sínar raðir en Watford hefur engan áhuga á að selja.

Ighalo skoraði 17 mörk á síðasta tímabili en hann og Troy Deeney mynduðu öflugt framherjapar.

Leicester hefur verið að reyna að kaupa Deeney að undanförnu en Watford vill selja hvorugan leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner