fös 01. júlí 2016 09:05
Magnús Már Einarsson
Annecy
Jón Daði og Birkir: Erfiðari leikur en gegn Englandi
Icelandair
Jón Daði í leiknum gegn Englandi.
Jón Daði í leiknum gegn Englandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson og Jón Daði Böðvarsson svöruðu spurningum á fréttamannafundi í Annecy í dag.

Þeir eru sammála því að leikurinn gegn Frökkum í 8-liða úrslitum á sunnudag verði erfiðari en gegn Englandi í 16-liða úrslitunum.

„Ég hugsa að þetta verði aðeins öðruvísi leikur og jafnvel erfiðari. Frakkarnir hafa meira tempó á boltanum og það verður erfiðara að verjast. Það verður góður hraði hjá þeim og þeir hafa góða einstaklinga. Við þurfum að vera klárir í það," sagði Jón Daði.

Birkir Már tók undir með honum.

„Ég er sammála Jóni. Ég held að þetta sé betra lið en England," sagði Birkir.

„Undirbúningurinn er samt ekki öðruvísi en fyrir síðasta leik. Sem einstaklingar eru þetta svipaðir leikmenn og ekki slakari eða betri. Ég held bara að liðið hjá Frökkum sé betra en hjá Englandi."

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner